Körfubolti

Eins leiks bann fyrir að sparka í punginn á LeBron

James Harden.
James Harden. vísir/getty
James Harden, stjarna Houston Rockets, þarf að hvíla í einn leik.

NBA-deildin hefur dæmt hann í eins leiks bann fyrir að sparka í punginn á LeBron James, leikmanni Cleveland.

Atvikið átti sér stað í þriðja leikhluta í leik liðanna á sunnudag. Þeir voru að berjast um boltann og er Harden dettur þá sparkar hann í punginn á LeBron.

Harden segir að þetta hafi verið óviljaverk. Leikmenn Cleveland voru æfir og vildu að Harden hefði verið vikið úr húsi.

Dómararnir sáu ekki ástæðu til þess og Harden var í lykilhlutverki er Rockets lagði Cleveland í framlengingu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×