Fótbolti

Eins dauði er annars brauð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fernando Torres hefur skorað mikilvæg mörk á leiktíðinni.
Fernando Torres hefur skorað mikilvæg mörk á leiktíðinni. Nordicphotos/getty
Samuel Etoo verður að öllum líkindum í byrjunarliði Chelsea gegn Schalke í Meistaradeild Evrópu annað kvöld sökum meiðsla Fernando Torres.

Torres meiddist á læri á æfingu Lundúnaliðsins á mánudag og var færður í meðhöndlun læknateymisins á Cobham-æfingasvæðinu. Fylgst verður með stöðu hans í vikunni og metið hvort hann geti spilað gegn West Brom um helgina í ensku úrvalsdeildinni.

Reiknað er með því að Samuel Etoo byrji í fremstu víglínu í fjarveru Spánverjans sem hefur spilað að undanförnu. Jose Mourinho, stjóri Chelsea, gæti gert fjölmargar breytingar enda var hann afar ósáttur við frammistöðuna gegn Newcastle um helgina.

Tveir ungir miðverðir, Nígeríumaðurinn Kenneth Omeruo og Tékkinn Tomas Kalas, eru í leikmannahópi Chelsea fyrir leikinn annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×