Viðskipti innlent

Einn sökudólgur

stjórnarmaðurinn skrifar
Staða forsætisráðherra var orðin vonlaus eftir uppljóstranir um eignir hans og konu hans í aflands­félaginu Wintris Inc. á Tortóla. Afsögn Sigmundar Davíðs var óumflýjanleg eftir að hann var hirtur eins og óþekkur skólastrákur af forseta.

Það er þó ekki sú staðreynd að þau hjón hafi átt félagið eða að forsætisráðherra hafi vanrækt að gera grein fyrir eign sinni í hagsmunaskráningu (sem hann sannanlega átti að gera) sem kom honum verst, heldur voru það miklu frekar viðbrögð Sigmundar við uppljóstruninni sem gera útslagið.

Í fyrsta lagi var frammistaða Sigmundar í viðtalinu fræga ekki boðleg. Það hefur hann sjálfur viðurkennt. Forsætisráðherra verður að hafa langlundargeð og manndóm til að svara erfiðum spurningum.

Í öðru lagi þá laug forsætisráðherra blákalt í viðtalinu, þegar hann sagðist aldrei hafa átt aflands­eignir. Það eitt ætti að vera frágangssök.

Í þriðja lagi þá hafa viðbrögðin verið í besta falli fáránleg. Af hverju heyrðist hvorki hósti né stuna frá honum um tilvist viðtalsins þær þrjár vikur sem liðu frá því það var tekið, og þar til það var sýnt? Hvernig má það vera að endaleikurinn hafi verið sá að arka umboðslaus á Bessastaði, til þess eins að snúa aftur með skottið milli lappana?

Síðast en ekki síst hefur Sigmundur gert Ísland að athlægi um víða veröld. Sú staðreynd að tíðindin rati í alþjóðlega stórmiðla gerir hugmyndir um samsæri Ríkisútvarpsins í besta falli hlægilegar.

Sigmundur Davíð og hans ríkisstjórn unnu marga stóra sigra. Efnahagsmálin hafa stórbatnað og uppgjöri gömlu bankanna er við það að ljúka. Þá glittir í afnám gjaldeyrishafta.

Það er synd að svona hafi þurft að fara, en sökudólgurinn er aðeins einn. Sigmundur Davíð sjálfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×