Erlent

Einn myrtur og þrír særðir á tónleikum hjá T.I.

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregluþjónar að störfum í New York. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Lögregluþjónar að störfum í New York. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Einn var skotinn til bana og þrír særðir, þar af einn alvarlega, í skotárás á tónleikum T.I. í New York í gær. T.I var ekki kominn á svið en árásin skapaði mikið öngþveiti meðal tónleikagesta. Vitni segja að deilur hafi staðið yfir á milli tveggja hópa áður en skotum var hleypt af baksviðs.

AP fréttaveitan hefur eftir lögreglu að einn maður hafi fengið skot í magann og dáið á sjúkrahúsi. Annar sem var skotinn í bringuna er í alvarlegu ástandi og maður og kona fengu sitt hvort skotið í fótinn.

Enginn hefur verið handtekinn vegna árásarinnar.

Samkvæmt CNN eru járnleitartæki við innganga tónleikahússins. Vitni segja þó hins vegar að öryggisgæsla hafi verið lítil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×