Erlent

Einn lést í sprengjuárás í Egyptalandi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Lögreglumaður lést og einn særðist eftir sprengjuárás sem gerð var á fjölfarinni strætisvagnastöð í miðborg Kaíró, höfuðborg Egyptalands í dag. Enginn hefur lýst árásinni á hendur sér.

Fyrr í vikunni sprakk sprengja á svipuðum slóðum með þeim afleiðingum að þrír særðust alvarlega. Allir þrír eru lögreglumenn.

Mikil ólga hefur ríkt í Egyptalandi undanfarin misseri eftir að Mohammed Morsi, fyrrverandi forseta landsins, var steypt af stóli og skar upp herör gegn Bræðralagi múslima sem Morsi tilheyrði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×