Innlent

Einn lést í slysinu á Reykjanesbraut

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Slysið varð um klukkan sjö í morgun.
Slysið varð um klukkan sjö í morgun. Vísir
Einn lést og tveir slösuðust í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á Reykjanesbraut, austan við Brunnhóla, í morgun. Sá sem lést var farþegi í annarri bifreiðinni, en ekki er hægt að greina frá líðan ökumannanna að svo stöddu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 6.48, en bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt. Talið er að annarri bifreiðinni hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×