Erlent

Einn látinn og sex slasaðir eftir að maður framdi sjálfsmorð í japanskri lest

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Maðurinn, sem einnig er látinn, hellti olíu yfir sjálfan sig og kveikti í sér.
Maðurinn, sem einnig er látinn, hellti olíu yfir sjálfan sig og kveikti í sér. Vísir/AFP
Einn er látinn og minnst sex aðrir eru slasaðir eftir að karlmaður framdi sjálfsmorð um borð í segulhraðlest í Japan. Maðurinn, sem einnig er látinn, hellti olíu yfir sjálfan sig og kveikti í sér um borð í fyrsta vagni lestarinnar.

Lestin, sem var á leið frá Tókýó til Osaka, var nærri borginni Odawara þegar ýtt var á neyðarhemil hennar. Um þúsund farþegar voru um borð. Allar lestir á þessari hraðleið hafa verið stöðvaðar.

Ekki liggur fyrir hvað manninum gekk til en samkvæmt lögreglu er málið meðhöndlað sem sjálfsmorð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×