Erlent

Einn látinn eftir kranaslys í New York

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Verið var að snúa krananum með áhangandi kúlu til niðurrifs þegar hann valt.
Verið var að snúa krananum með áhangandi kúlu til niðurrifs þegar hann valt. NYPD News
Að minnsta kosti einn er látinn eftir að krai féll niður í New York í Bandaríkjunum. Fimmtán slösuðust, þar af tveir alvarlega, samkvæmt bandarískum fjölmiðlum.

Verið var að snúa krananum með áhangandi kúlu til niðurrifs þegar hann valt. Óljóst er enn hvað varð til þess að kraninn valt.

Nokkrir bílar, sem lagt hafði verið með fram götunni, skemmdust. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×