Erlent

Einn látinn á Jónahafi

vísir/ap
Að minnsta kosti einn er látinn og annar alvarlega slasaður eftir að eldur kom upp í ferju nálægt eyjunni Korfú í Jónahafi í morgun. Um 160 farþegum hefur veirð bjargað alls voru 478 um borð í ferjunni.

Að minnsta kosti 200 farþegar eru enn fastir um borð en slæmt veður er á svæðinu hafa björgunarstörf gengið illa. Ferjan var á leið frá Grikklandi til Ítalíu en talið er að eldurinn hafi blossað upp á bílaþilfari ferjunnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×