Innlent

Einn í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar árásar á Akranesi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Atvikið átti sér stað á Akranesi á föstudagskvöld.
Atvikið átti sér stað á Akranesi á föstudagskvöld. Vísir/GVA
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar árásar sem átti sér stað á Akranesi á föstudaginn. Fórnarlambið liggur á gjörgæslu og rannsókn málsins er í fullum gangi.

Lögreglan á Vesturlandi staðfesti við Vísi að maður sem var í haldi lögreglu eftir atvikið hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. október. Lögreglan segir að rannsókn málsins sé í fullum gangi en geti að öðru leyti ekki tjáð sig frekar um málið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×