Innlent

Einn fluttur á sjúkrahús eftir ammoníaksleka í Grindavík

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ammoníaksrör rofnaði í frystisamstæðu í vinnslusal frystihúss í vikunni.
Ammoníaksrör rofnaði í frystisamstæðu í vinnslusal frystihúss í vikunni. vísir/pjetur
Einn var fluttur á sjúkrahús í vikunni eftir að ammoníaksleki hafði orðið í vinnslusal frystihúss í Grindavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglustjóranum á suðurnesjum rofnaði ammoníaksrör í frystisamstæðu í vinnslusalnum. Starfsmaður hafði sett lítið plastskurðarbretti upp við hlið samstæðunnar sem olli því að rörið fór í sundur.

Annar starfsmaður fann fyrir ertingu í öndunarvegi og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann var þó ekki talinn sýna merki um ammoníakseitrun. Slökkvilið Grindavíkur aðstoðaði við að gasræsta húsið og gekk það fljótt og vel. Lögreglan á Suðurnesjum  tilkynnti Vinnueftirliti um atvikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×