Erlent

Einn dáðasti stjórnmálamaður Brasilíu flæktur í umfangsmikið spillingarmál

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Stuðningsmenn Lula umkringja hann þar sem hann kemur heim til sín eftir að hafa losnað úr haldi lögreglu.
Stuðningsmenn Lula umkringja hann þar sem hann kemur heim til sín eftir að hafa losnað úr haldi lögreglu. vísir/epa
Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, heimsótti í dag Luiz Inacio Lula da Silva, forvera sinn í embætti, og sýndi þannig stuðning sinn í verki en Lula var handtekinn og yfirheyrður í gær vegna gruns um að hann tengist umfangsmiklu spillingarmáli olíufyrirtækisins Petrobras sem er að meirihluta í eigu brasilíska ríkisins.

Hundruð manna söfnuðust saman fyrir framan heimili Lula í Sao Paulo í dag til að sýna honum stuðning sinn. Hann kom út á svalir íbúðar sinnar með Rousseff þar sem þau veifuðu til mannfjöldans.

Lula hefur sagt að handtaka hans í gær hafi aðeins verið liður í því að sverta ímynd hans sem og ímynd Rousseff en þau koma úr sama flokki, Verkamannaflokknum. Lula var forseti Brasilíu frá 2003 til 2011 þegar Rousseff var kosin forseti.

Rousseff og Lula á svölum heimilis hans í dag.vísir/epa
Spillingarmálið sem lögreglan grunar Lula um að tengjast teygir anga sína víða um brasilískt samfélag. Tugir viðskiptajöfra og stjórnmálamanna, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, eru grunaðir um að spillingu en meðal annars er talið að pólitíkusum hafi verið mútað af mönnum í viðskiptalífinu sem vildu ná hagstæðum samningum við ríkisrekna olíurisann.

Stjórnmálamennirnir eiga síðan að hafa notað peninginn í eigin þágu, til að mynda í kosningabaráttum, og eru flokksmenn í flokki þeirra Rousseff og Lula engin undantekning.

Rannsókn lögreglunnar er gríðarlega umfangsmikil og hefur verið í gangi í tvö ár. Talið er að málið nái allt aftur til ársins 2003 en Lula er grunaður um að hafa nýtt sér samning sem byggingarfyrirtæki fékk við Petrobras til þess að fá þann sama verktaka til að gera upp strandhús og bóndabæ í eigu fjölskyldu Lula.

„Lula er spilltur“ stendur á þessum borða mótmælenda í Belo Horizonte í ágúst í fyrra.vísir/epa
Forsetinn fyrrverandi hefur staðfastlega neitað því að tengjast spillingarmálinu á nokkurn hátt. Lula er gríðarlega vinsæll í Brasilíu, ekki síst á meðal lægri stétta þjóðarinnar. Hann var fyrsti vinstrisinnaði forsetinn í landinu í hartnær hálfa öld en hann stýrði þjóðarskútunni þegar mikill uppgangur var í Brasilíu. Þá bötnuðu lífsgæði þeirra allra fátækustu mjög, ekki síst vegna ýmissa félagslegra verkefna sem ríkisstjórn Lula réðst í.

Vinsældir hans hafa þó dvínað síðustu misseri þar sem hann hefur verið tengdur við spillingarmál Petrobras. Þá er málið allt hið erfiðasta fyrir Rousseff sem á í vök að verjast enda er nú mikil niðursveifla í brasilísku efnahagslífi, og hefur ekki verið meiri í 25 ár. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×