Sport

Einn besti varnarmaður NFL-deildarinnar á lausu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Norman á ferðinni í Super Bowl.
Norman á ferðinni í Super Bowl. vísir/getty
Josh Norman átti stóran þátt í frábæru gengi Carolina Panthers á síðustu leiktíð og hans verður líklega sárt saknað næsta vetur.

Samningaviðræður hans við félagið hafa ekki gengið vel og hann er núna með lausan samning eftir að Panthers gekk frá samningaborðinu.

Norman lék stórkostlega á síðustu leiktíð eins og áður segir og komst í stjörnuliðið í fyrsta skipti á ferlinum.

Það eiga klárlega mörg lið eftir að bera víurnar í hann á næstunni og alveg ljóst að Norman fær stóran samning hjá því félagi sem hann semur við.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×