Innlent

Einn alvarlega slasaður eftir bílveltu á Suðurlandsvegi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Sjúkrabíll kom á vettvang slyssins ásamt lögreglu.
Sjúkrabíll kom á vettvang slyssins ásamt lögreglu. Vísir/Pjetur
Bíll valt á Suðurlandsvegi skammt vestan við Kistufell í Vestur-Skaftafellssýslu í kvöld en óskað var eftir aðstoðar lögreglu um rúmlega átta. Lögregla fór á staðinn auk sjúkrabíls.

Einn maður var í bílnum þegar hann valt. Sá var fluttur með sjúkrabifreið til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flutti hann á sjúkrahús í Reykjavík. Maðurinn er talinn alvarlega slasaður.

Rannsókn málsins er í höndum lögreglu og samgöngunefndar umferðarslysa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×