Fótbolti

Einn af strákunum okkar á KR-velli: Gaman að spila fyrsta leikinn fyrir framan vini og fjölskyldu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson á æfingu með íslenska landsliðinu á EM.
Rúnar Már Sigurjónsson á æfingu með íslenska landsliðinu á EM. Vísir/AFP
Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson gæti spilað fyrsta keppnisleikinn sinn með svissneska liðinu Grasshopper í kvöld og það á KR-vellinum.

KR tekur á móti Grasshopper á Alvogen-vellinum í Vesturbænum í kvöld en þetta er fyrri leikur liðanna í annarri umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. KR sló út norður-írska liðið Glenovan í fyrstu umferðinni.

Rúnar Már Sigurjónsson er nýkominn heim frá Frakklandi þar sem hann var í EM-hóp íslenska liðsins sem fór öllum á óvörum alla leið í átta liða úrslitin. Hann fékk ekki tækifæri á mótinu en um mitt mót fréttist af því að Svisslendingarnir höfðu mikinn áhuga á honum.

Grasshopper keypti síðan Rúnar Már frá sænska liðinu GIF Sundsvall 7. júlí síðastliðinn fyrir 300 þúsund evrur eða um 40,8 milljónir íslenskra króna.

Rúnar Már Sigurjónsson hefur spilað einn æfingaleik með Grasshopper en hefur þess utan verið upptekinn við það að flytja allt sitt frá Svíþjóð til Sviss.

„Ég er bara spenntur og það verður vonandi gaman að spila fyrsta alvöru leikinn með liðinu á móti KR á Íslandi fyrir framan vini og fjölskyldu," sagði Rúnar Már Sigurjónsson í samtali við Guðmund Hilmarsson í Morgunblaðinu.

Rúnar Már náði bara tveimur æfingum með liðinu eftir að hann gekk frá samningi sínum en hann skoraði í æfingaleik á móti Aarau.

Rúnar Már fær ekki mikla hvíld eftir EM sem hann segir hafa tekið á þrátt fyrir að hann hafi ekki spilað eina mínútu.

„Ég er hungraður í að spila en er í bland þreyttur. Ég spilaði tólf leiki á sjö vikum með Sundsvall og svo tók Evrópumótið við. Þrátt fyrir að hafa ekki spilað í eina mínútu á EM þá fann ég fyrir andlegri þreytu eftir mótið en núna vill maður ólmur komast af stað með nýja liðinu," sagði Rúnar Már í fyrrnefndu viðtali.

Leikur KR og Grasshopper hefst klukkan 19.15 í kvöld og verður fylgst með honum hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×