Sport

Einkunnirnar þær hæstu í manna minnum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir á Gaddstaðaflötum skrifar
Þórarinn og Spuni.
Þórarinn og Spuni. vísir/bjarni þór
Sterkustu fimmgangshestar landsins öttu kappi í kvöld á Landsmóti hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu. Keppnin var æsispennandi fram að síðustu einkunn en einkunnirnar sem veittar voru eru með þeim hæstu í sögunni. Hinn 25 ára gamli Þórarinn Ragnarsson vann öruggan sigur á hestinum Spuna frá Vesturkoti með einkunnina 9,30. Gísli Gíslason á Trymbli frá Stóra-Ási fylgdi fast á hæla Þórarins með 9,19 í einkunn og í þriðja sæti hafnaði Steingrímur Sigurðsson á Gróða frá Naustum.

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra afhenti verðlaunin ásamt Lárusi Blöndal forseta ÍSÍ og listakonunni Siggu á Grund. Verðlaun þessi voru veitt í fyrsta sinn og skar Sigga á Grund þau út í tré og ber gripurinn heitið Gæðingaverðlaun LH.

Veðrið var þó ekki hliðhollt landsmótsgestum en hávaðarok hefur verið á svæðinu og rigning en virtist það lítil áhrif hafa á knapa, hesta og aðra gesti landsmótsins. Áhorfendastúkan var þétt setin og fagnaðarlætin mikil þegar úrslit voru kveðin upp.

Úrslitin voru eftirfarandi:

A flokkur - A úrslit

1. Spuni frá Vesturkoti / Þórarinn Ragnarsson 9,30

2. Trymbill frá Stóra-Ási / Gísli Gíslason 9,19

3. Gróði frá Naustum / Steingrímur Sigurðsson 9,02

4. Nagli frá Flagbjarnarholti / Árni Björn Pálsson 8,91

5. Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu / Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,81

6. Gangster frá Árgerði / Stefán Birgir Stefánsson 8,76

7. Spói frá Litlu-Brekku / Sigurbjörn Bárðarson 8,73

8. Gormur frá Efri-Þverá / Sigurður Vignir Matthíasson 8,71


Tengdar fréttir

Landsmótið sett í blíðskaparveðri

Þrátt fyrir að veður hafi sett töluvert strik í reikninginn síðastliðna daga hafa landsmótsgestir ekki látið það mikið á sig fá og hefur það verið nokkuð vel sótt.

Heimsmet á Hellu

Heldur betur hefur ræst úr veðri á Gaddstaðaflötum á Hellu og sólin farin að skína á gesti landsmóts hestamanna.

Segir hugarfar hestamanna byggjast á afneitun

Tungubogar, sem sagðir eru stríða gegn dýravelferðarlögum, eru enn í notkun meðal hestamanna. Hestafræðingur sakar hestamenn um að neita að horfast í augu við staðreyndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×