Handbolti

Einkunnir strákanna okkar: Sumir þurfa að gera miklu betur

Strákarnir okkar sjá þriðja sætið í hyllingum.
Strákarnir okkar sjá þriðja sætið í hyllingum. vísir/epa
Ísland vann sinn fyrsta sigur á HM 2017 í handbolta í kvöld þegar liðið lagði Angóla, 33-19, í fjórðu umferð B-riðils. Strákarnir okkar eru nú með þrjú stig og eiga einn leik eftir á móti Makedóníu.

Íslenska liðið spilaði ekki nógu vel í leiknum en innbyrti þó á endanum fjórtán marka sigur eftir góðan endasprett. Það á góðan möguleika á þriðja sætinu í riðlinum.

Sjá einnig:Twitter: Þjóðinni ekki skemmt yfir ósannfærandi frammistöðu

Eftir hvern leik íslenska liðsins munu íþróttafréttamenn 365 gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Angóla:

Björgvin Páll Gústavsson - 4

Besti leikmaður íslenska liðsins í leiknum. Hann var rólegur. Auðvitað voru skotin ekki þau bestu en í svona leikjum þurfa menn að halda einbeitingnu og það gerði hann svo sannarlega.

Guðjón Valur Sigurðsson - 4

Fyrirliðinn var frábær í fyrri hálfleik og dró vagninn oftar en ekki úr sinni uppáhaldsstöðu; hröðum upphlaupum. Fór reyndar illa með færi sem skrifast á einbeitingarleysi.

Bjarki Már Gunnarsson - 4

Átti aftur skínandi leik í vörninni. Hann þurfti að verjast á stóru svæði og gerði það mjög vel.

Ólafur Guðmundsson - 2

Hann átti í miklum erfiðleikum í leiknum, sérstaklega í upphafi þar sem hann var slakur í vörninni. Það kann að vera að hann hafi þurft að minnka þá orku sem hann setti í sóknarleikinn en hún var nákvæmlega engin í leiknum. Kannski veit það á gott fyrir framhaldið.

Janus Daði Smárason -

Spilaði ekki vegna meiðsla. Hans var sárt saknað.

Rúnar Kárason - 3

Kom inn á undir lok leiksins og hjálpaði liðinu að ná þeirri forystu sem þurfti. Hann skilaði tveimur góðum mörkum en vonandi verður hann í ham það sem eftir lifir keppni. Við þurfum á Rúnari að halda, svo sannarlega.

Arnór Þór Gunnarsson - 4

Besti leikur Arnórs í mótinu. Hann fékk loksins þá þjónustu sem hann þarf. Arnór hefur það fram yfir marga aðra að honum er keppnisskapið í blóð borið og það geislar í gegn að hann vill gera vel og leggur sig allan fram. Fyrir það fær hann alltaf prik.

Kári Kristján Kristjánsson - 2

Auðvitað fær Kári ekki mikinn spiltíma þar sem hann er bara hálfur leikmaður þar sem hann spilar ekki vörn. Maður með þennan skrokk og þessa reynslu á samt að gera meira fyrir liðið en hann hefur gert í keppninni til þessa. Svo virðist sem hann sé einfaldlega ekki í nógu góðu standi.

Ásgeir Örn Hallgrímsson - 3

Ásgeir gerði vel í fyrri hálfleik. Hann lagði upp fjögur góð mörk og skoraði eitt en virðist í miklum vandræðum með tímasetningar og hlaupaleiðir og virkar ekki í góðu standi. Ásgeir hefur aftur á móti spilað góða vörn eins og hans er von og vísa.

Arnar Freyr Arnarsson - 3

Ekki eins góður leikur hjá Arnari og hinir hafa verið. Hann reyndi að gera sitt besta og tókst ágætlega upp. Þetta er leikmaður sem getur komist í fremstu röð en var langt frá því að spila jafnvel í kvöld og hann gerði í fyrstu þremur leikjunum.

Arnór Atlason - 3

Arnór stillti liðinu vel upp og stýrði sóknarleiknum ágætlega. Í vörninni skilar hann alltaf sínu en það var ljóst að hann lágmarkaði þá orku sem hann setti í leikinn, kannski sem betur fer. Hann er kannski lykilinn að því að við vinnum Makedóníu ef hann verður í sínu besta standi.

Guðmundur Hólmar Helgason -

Kom ekkert við sögu

Gunnar Steinn Jónsson - 2

Gunnar fékk mikinn spiltíma en var oftar en ekki í vandræðum í leiknum, sérstaklega í sókninni. Hann var ekki sterkur maður á móti manni en Gunnar gerir aftur á móti ekki marga feila. Hann verður að skila betri leik þegar hann fær tækifærið.

Ómar Ingi Magnússon - 3

Nýliðinn á enn þá langt í land. Hann er tæknilega frábær en ótrúlega mistækur. Hann er hins vegar bara 19 ára og það verður að taka það með í reikninginn. Kannski er lengra í Ómar Inga en menn héldu. Pottþéttur í vítaköstunum.

Aron Rafn Eðvarðsson - 2

Kom inn í byrjun seinni hálfleiks og varði ekki skot. Tekinn aftur af velli og sat á bekknum það sem eftir lifði leiks. Ekki merkileg innkoma.

Bjarki Már Elísson - 4

Hornamaðurinn sýndi enn og aftur hversu góður leikmaður hann er. Það er yndislegt að sjá hann fara inn af teignum þar sem hann er öryggið uppmálað. Þetta er leikmaður með sjálfstraustið í botni.

Geir Sveinsson - 3

Skyldusigur fyrir þjálfarann. Menn báðu um tvö stig og hann náði þeim. Sóknarleikurinn var afleitur og liðið verður augljóslega að gera miklu betur. Leikhléið sem hann tók um miðbik seinni hálfleiks skilaði þó flottum endaspretti en þar hafði Geir bein áhrif á leikinn. Vel gert.

Útskýring á einkunnum:

6 - Heimsklassa frammistaða

5 - Frábær frammistaða

4 - Góð frammistaða

3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu

2 - Ekki nógu góð frammistaða

1 - Slakur leikur

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×