Fótbolti

Einkunnir íslenska liðsins | Gylfi maður leiksins

Strákarnir okkar eru komnir upp í 2. sæti I-riðils.
Strákarnir okkar eru komnir upp í 2. sæti I-riðils. vísir/epa
Ísland er komið upp í 2. sæti I-riðils í undankeppni HM 2018 eftir 1-2 útisigur á Kósóvó í kvöld.

Björn Bergmann Sigurðarson og Gylfi Þór Sigurðsson skoruðu mörk íslenska liðsins sem átti undir högg að sækja lengi vel í leiknum.

Stigin þrjú komu þó í hús og þau skiluðu Íslandi upp í 2. sæti riðilsins með 10 stig, þremur stigum á eftir toppliði Króatíu.

Gylfi Þór Sigurðsson var að mati Vísis maður leiksins í dag með átta í einkunn. Einkunnagjöfina má sjá hér fyrir neðan.

Byrjunarlið:

Hannes Þór Halldórsson, markvörður 6

Gat lítið gert í markinu sem Kósóvó skoraði snemma í síðari hálfleik. Virtist öruggur í sínum aðgerðum.

Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 7

Átti gott hlaup inn í teig þegar hann nældi í vítaspyrnuna sem skapaði annað mark Íslands í leiknum. Duglegur, eins og alltaf, og hélt sinum manni í skefjum í sínum sjötugasta landsleik.

Kári Árnason, miðvörður 8

Öflugur í loftinu sem nýttist á báðum endum vallarins. Samvinna hans við Ragnar gekk vel, eins og svo oft áður síðustu misserin.

Ragnar Sigurðsson, miðvörður 8

Hefur ekki spilað mikið að undanförnu en það var ekki að sjá á leik hans. Fékk eins og félagar hans í vörninni nóg að gera en leysti sitt vel.

Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 6

Átti lítið erindi í skallaeinvígið við Nuhiu er Kósóvó minnkaði muninn. Var mikið í boltanum og reyndi eins og hann gat að leggja sitt af mörkum í sókninni.

Emil Hallfreðsson, hægri kantmaður 5

Dró sig mikið inn á miðjuna og hjálpaði til í varnarleiknum. En það kom lítið úr honum fram á við og þess var saknað í sóknarleik íslenska liðsins.

Aron Einar Gunnarsson, miðjumaður 7

Eins og svo oft áður í afar mikilvægu hlutverki inni á miðjunni. Gerði sitt vel en gat lítið sótt fram á við.

Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður 8 - maður leiksins

Framlag hans skiptir íslenska liðið svo svakalega miklu máli og það sýndi sig enn og aftur í kvöld - sérstaklega í báðum mörkum Íslands í fyrri hálfleik. Frábær frammistaða, enn og aftur.

Arnór Ingvi Traustason, vinstri kantmaður 6

Duglegur og átti þátt í fyrsta marki Íslands en framlag hans fram á við hefði mátt skila sér oftar í hættulegri færum. Virtist stundum eilítið villtur með boltann.

Björn Bergmann Sigurðarson, framherji 7

Skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og gerði það vel. Markið var mikill léttir eftir strembnar upphafsmínútur. Fékk annars úr litlu að moða.

Viðar Örn Kjartansson, framherji 5

Var duglegur framan af og reyndi að ógna nokkrum sinnum með ágætum marktilraunum en annars komið lítið úr Viðari í þessum leik.

Varamenn:



Jón Daði Böðvarsson - (Kom inn á fyrir Viðar Örn Kjartansson á 69. mínútu) 6

Var að venju duglegur og átti einn ágætis skalla yfir mark Kósóvó.

Rúrik Gíslason- (Kom inn á fyrir Arnór Ingva Traustason á 72. mínútu)

Spilaði ekki nógu lengi til að fá einkunn.

Ólafur Ingi Skúlason - (Kom inn á Björn Bergmann Sigurðarson á 86. mínútu)

Spilaði ekki nógu lengi til að fá einkunn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×