Fótbolti

Einkunnir Íslands: Gylfi bestur gegn Króötum

Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum í dag. Vísir/EPA
Ísland tapaði sínum fyrsta leik í undankeppni HM 2018 er strákarnir okkar máttu sætta sig við 2-0 tap fyrir Króatíu í Zagreb í dag.

Marcelo Brozovic skoraði bæði mörk Króata með skotum fyrir utan vítateig.

Íslendingar spiluðu ágætlega í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik, en nýttu færin sín illa sem varð liðinu að falli að þessu sinni.

Einkunnir Íslands í leiknum:

Hannes Þór Halldórsson 5

Hefði kannski getað gert betur í fyrra markinu en skotið hjá Brozovic var gott. Varði vel frá Perisic undir lok fyrri hálfleiks. Óöruggur í hornspyrnum í seinni hálfleik.

Birkir Már Sævarsson 5

Átti erfitt uppdráttar gegn Perisic. Slakar fyrirgjafir.

Kári Árnason 7

Heppinn að fá ekki á sig víti í fyrri hálfleik. Hefði hugsanlega getað pressað betur á Brozovic í fyrra markinu. Rann í því seinna. Vann flest skallaeinvígi.

Ragnar Sigurðsson 7

Traustur að vanda. Full passívur í seinna markinu.

Hörður Björgvin Magnússon 4

Byrjaði leikinn illa og virkaði stressaður. Skilaði boltanum afar illa frá sér. Virtist öruggari í aðgerðum sínum eftir því sem leið á leikinn.Spilar með miðvörður með sínu félagsliði og virtist ekki líða neitt sérstaklega vel í vinstri bakverðinum.

Jóhann Berg Guðmundsson 7

Átti ágætis leik en datt full mikið út úr leiknum í seinni hálfleik. Slakar spyrnur í föstum leikatriðum.

Aron Einar Gunnarsson 6

Spilaði framar en oft áður. Átti flottan sprett í fyrri hálfleik sem var nálægt því að skila marki.

Birkir Bjarnason 5

Var illa staðsettur þegar Brozovic fékk boltann og kom Króötum yfir. Virtist vera stundum í basli með sitt hlutverk á miðjunni og var alltaf í eltingarleik.

Theodór Elmar Bjarnason 4

Var eins og aðrir í vandræðum með að skila boltanum af sér. Fékk snemma gult í leiknum og var heppinn að fá ekki seinna gula spjaldið sitt eftir brot í fyrri hálfleik. Skánaði í seinni hálfleik en var talsvert frá sínu besta.

(75. Viðar Örn Kjartansson -)

Spilaði ekki nógu lengi til að fá einkunn.

Gylfi Þór Sigurðsson 7 - Maður leiksins

Besti maður íslenska liðsins. Mjög vinnusamur og sýndi á köflum hversu góður hann er. Kom sér í ágætt færi snemma leiks en skaut í varnarmann Króata. Nýtist þó ekki jafn vel í sókn og á miðjunni.

Jón Daði Böðvarsson 5

Missti boltann of oft og skilaði honum ekki nógu vel frá sér. Hefði þurft að halda boltanum betur, sérstaklega í seinni hálfleik þegar Króatar voru með yfirhöndina. Átti erfitt uppdráttar einn gegn einum.

(75. Arnór Ingvi Traustason -)

Spilaði ekki nógu lengi til að fá einkunn.


Tengdar fréttir

Ragnar: Finnst Mandzukic ekki geta neitt

"Mér fannst við ekki beint lélegir í seinn hálfleik en sá fyrri var betri,“ sagði Ragnar Sigurðsson miðvörður Íslands um tapið gegn Króatíu í kvöld.

Úkraína upp fyrir Ísland

Úkraínumenn komust upp fyrir Íslendinga í I-riðli undankeppni HM 2018 eftir 1-0 sigur á Finnum á heimavelli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×