Handbolti

Einkunnir Gaupa: Sex leikmenn fá lægstu einkunn

vísir/pjetur og eva björk
Íslenska landsliðið er úr leik á HM eftir tap gegn Dönum í kvöld. Íslenska liðið sá aldrei til sólar í leiknum.

Líkt og áður gefur Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Danmörku:

Björgvin Páll Gústavsson - 5

Að öðrum ólöstuðum besti leikmaður Íslands á þessu heimsmeistaramóti. Byrjaði ekki vel gegn Dönum og átti erfitt uppdráttar þar sem vörnin var eins og gatasigti. Stóð samt fyrir sínu og gott betur.

Guðjón Valur Sigurðsson - 2

Fyrirliðinn var ólíkur sjálfum sér á mótinu. Fann ekki taktinn í sínum leik. Náði að koma til baka undir lokin í kvöld en náði aldrei að draga liðið með sér og var langt frá sínu besta.

Snorri Steinn Guðjónsson - 1

Átti slakan dag. Leikur íslenska liðsins hægur og fyrirséður. Nýtti færin sín illa. Virkaði óöruggur og mjög passífur. Átti sína spretti á mótinu en leikmaður sem á að geta gert mikið betur.

Alexander Petersson - 5

Besti leikur hans í keppninni. Því miður voru félagar hans ekki að hjálpa honum við verkið. Dró vagninn í sókninni og eini leikmaður íslenska liðsins sem virtist draga á markið.

Ásgeir Örn Hallgrímsson - 2

Skilaði sínu í vörninni en virkaði ragur og einfaldlega þreyttur í sókninni. Átti sínar rispur í mótinu en var langt frá sínu besta.

Róbert Gunnarsson - 1

Átti á köflum prýðismót en fann engan takt í kvöld. Leikmenn fundu hann ekki á línunni og Danir lokuðu á hann og virtust vita nákvæmlega hvað hann ætlaði að gera.

Sverre Andreas Jakobsson - 2

Sverre átti ekki sinn besta leik í dag en þessi ótrúlegi karakter hefur þjónað landsliðinu vel og lengi. Hann lýkur nú keppni fyrir fullt og fast. Hans verður sárt saknað. Arftakinn hvergi sjáanlegur.

Bjarki Már Gunnarsson - 1

Slakasti leikur hans í keppninni. Danir spiluðu inn á veikleika íslenska liðsins. Það er að segja á miðsvæði varnarinnar og þarna kom berlega í ljós að Bjarka skortir reynslu í þessari stöðu.

Stefán Rafn Sigurmannsson - spilaði ekkert

Arnór Atlason - 1

Virkaði þungur allt mótið og var í raun óþekkjanlegur. Ekki sami Arnór og á undangengnum árum. Í vörninni skilaði hann sínu en var langt frá sínu besta í sókninni. Hans slakasta mót frá upphafi.

Sigurbergur Sveinsson - 1

Það er ekki hægt að segja að Sigurbergur hafi fengið mörg tækifæri. Hæfileikaríkur leikmaður en náði sér ekki á strik á stóra sviðinu. Var fyrirséður í sínum aðgerðum og oftar en ekki óöruggur.

Arnór Þór Gunnarsson - 2

Fékk lítinn spiltíma. Örugglega framtíðarmaður. Baráttujaxl og hefði kannski átt að fá fleiri tækifæri.

Kári Kristján Kristjánsson - 3

Nýtti vel þau tækifæri sem hann fékk á þessu móti. Virkar í góðu standi og spilar ágætlega fyrir félaga sína. Nýtir færin vel. Á enn mikið inni og getur bætt sig enn frekar.

Vignir Svavarsson - 3

Stóð sig prýðilega í sókninni og kannski þarf að horfa meira til hans næstu tvö árin á þeim vettvangi. Var oftar en ekki í vandræðum í vörninni og vantaði þar allan takt. Hins vegar ekki galið mót í heild sinni hjá honum.

Aron Rafn Eðvarðsson - spilaði ekkert

Gunnar Steinn Jónsson - 1

Eftir frábæra frammistöðu í síðasta leik náði Gunnar engum takti í sinn leik frekar en aðrir í útilínu Íslands. Virkaði óöruggur og hræddur en ekki má taka af honum að hann var maðurinn sem kom okkur í gegnum Egypta-leikinn. Hann fær plús í kladdann fyrir það.

Aron Kristjánsson - 2

Verður ekki sakaður um að hafa ekki reynt að gera breytingar á íslenska liðinu í þessum leik. Enn og aftur byrjaði íslenska liðið illa. Hvers vegna? Veit það einhver? Varpaði oftar en ekki ábyrgðinni á leikmenn liðsins á mótinu sem vissulega á köflum stóðu sig ekki. Landsliðsþjálfari ber hins vegar ábyrgð á liðinu, úrslitum leikja og niðurstöðunni. Þarf að hugsa sinn gang rétt eins og leikmenn liðsins en verður ekki alfarið sakaður um slakt gengi liðsins á þessu móti. Ósanngjarnt.

Útskýring á einkunnum:

6 - Heimsklassa frammistaða

5 - Frábær frammistaða

4 - Góð frammistaða

3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu

2 - Ekki nógu góð frammistaða

1 - Slakur leikur

Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).


Tengdar fréttir

Einkunnir Gaupa: Guðjón Valur í heimsklassa

Íslenska landsliðið tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum á HM í Katar með þriggja marka sigri, 28-25, á Egyptalandi í dag. Íslensku strákarnir sýndu styrk og rifu sig upp eftir hörmulegan leik gegn Tékklandi. Ísland mætir annað hvort Danmörku eða Póllandi í 16-liða úrslitunum.

Einkunnir Gaupa: Aron Pálmarsson bestur

Eftir hvern leik íslenska liðsins mun Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×