Innlent

Einkunnaverðbólga á Íslandi? Verzló hafnaði 60 nemendum með níu eða yfir í meðaleinkunn

Bjarki Ármannsson skrifar
Samkvæmt fréttinni á vef Verzló var meðaleinkunn þeirra sem sóttu um 9,0 og meðaleinkunn þeirra sem teknir voru inn 9,4.
Samkvæmt fréttinni á vef Verzló var meðaleinkunn þeirra sem sóttu um 9,0 og meðaleinkunn þeirra sem teknir voru inn 9,4. Vísir
Verzlunarskóli Íslands, vinsælasti menntaskólinn meðal þeirra tíundu bekkinga sem sóttu um framhaldsnám nú í vor, þurfti að hafna rúmlega sextíu nemendum sem voru með 9,0 eða hærra í meðaleinkunn. Í frétt á vef skólans er gerð athugasemd við það hversu gríðarmikið einkunnir grunnskólanema hafa hækkað frá því að samræmdu prófin voru aflögð.

555 sóttu um nám við Verzló sem fyrsta val og 140 sem annað val. Aðeins 280 nýnemapláss voru hinsvegar í boði. Samkvæmt fréttinni á vef Verzló var meðaleinkunn þeirra sem sóttu um 9,0 og meðaleinkunn þeirra sem teknir voru inn 9,4.

Sjá einnig: Stór hluti þeirra sem sóttu um í Verzló mun ekki fá inngöngu

„Þessar háu einkunnir valda nokkrum heilabrotum og eðlilegt að skólafólk og aðrir áhugasamir spyrji sig hvert stefni í þessum efnum,“ segir í frétt Verzlunarskólans. „Er örugglega verið að leggja réttan mælikvarða á hæfni nemenda við lok grunnskólans?“

Einkunnadreifing í stærðfræði meðal nýnema Verzló árin 2004 og 2014.Mynd/Verzlunarskóli Íslands
Einkunnir grunnskólanema hafa hækkað mjög mikið frá því að samræmd próf voru lögð niður árið 2008. Sem dæmi nefnir höfundur fréttarinnar að meðaleinkunn stærðfræðinema árið 2004 var 8,1 í skólaeinkunn en í fyrra var hún orðin 9,2. Þó bendi ekkert til þess að nýnemar við Verzlunarskólann séu betri námsmenn nú en fyrir tíu árum.

„Fylgst hefur verið náið með námskröfum og námsgengi nemenda skólans og þar bendir fátt til þess að nemandi með 9,0 árið 2014 standi sig betur en nemandi með 8,0 árið 2004,“ segir í fréttinni. „Hin síðari ár höfum við of mörg sorgleg dæmi þess að nemandi með einkunn upp á 9,0 og 9,5 í stærðfræði og íslensku í skólaeinkunn úr grunnskóla nái jafnvel ekki lágmarksviðmiðum í hvorugri greininni á sínu fyrsta ári í Verzlunarskólanum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×