Lífið

Einkanúmerið BIATCH: „Skrúfuðu þetta á að mér forspurðri“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Númerið á bílum sem það hefur verið á í gegnum tíðina.
Númerið á bílum sem það hefur verið á í gegnum tíðina. myndir/maría edwardsdóttir
„Ég fékk númerið í afmælisgjöf þegar ég varð 25 ára gömul,“ segir María Edwardsdóttir aðspurð um einkanúmer sem hún hefur á bílnum sínum. Síðustu sextán ár hafa bílar hennar borið einkanúmerið BIATCH.

„Vinir mínir gáfu mér plötuna í afmælisgjöf. Þá var ég einstæð móðir og þeim fannst númerið vera akkúrat það sem mig vantaði á þeim tíma.“

Sjá einnig:Með einkanúmerið IM CEO: „Það er auðvitað dass af hroka í þessu“

Aðspurð segir hún að þetta hafi verið einhver einkahúmor innan vinahópsins. Skömmu fyrir afmælið hafi vinir hennar verið búnir að kaupa plötuna og skrúfa hana á bílinn hennar að henni forspurðri. María segir að vinir hennar hafi sett hana á aðeins fyrir afmælið sitt. Daginn fyrir það hafi hún og bróðir hennar út í búð og honum tókst að koma í veg fyrir að hún sæi hana.

„Þegar við komum að búðinni beið ég eftir því að bíll æki út úr stæði og ætlaði að leggja í það í kjölfarið. Þá birtist bíll og rauk í stæðið á undan mér. Eðlilega fór ég út úr bílnum og reif aðeins kjaft. Samkvæmt bróður mínum varð manninum litið á bílnúmerið, síðan á mig og að endingu ákvað hann að aka á brott.“

Vekur athygli í umferðinni

Í umferðinni vekur platan heilmikla athygli. María segir að það komi ítrekað fyrir að fólk flauti á þau á ljósum. Það hafi komið fyrir oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að fólk hafi stillt sér upp við bílinn sem númerið prýðir og smellt af sér mynd.

„Stundum, þegar ég er á akstri, sjá unglingar bílinn og draga þá ályktun af númerinu að ég hljóti að vera jafnaldra þeirra. Það hefur mörgum brugðið í brún þegar þeir renna upp að hlið mér og sjá hálfmiðaldra konu með fullan bíl af börnum,“ segir María.

Í gegnum tíðina hefur númeraplatan verið færð á milli bíla og alltaf vakið athygli. Mest er athyglin samt nú þegar númerið er á 44“ Patrol jeppa.

„Hinn bíllinn okkar er sjö sæta Benz þar sem aftursætin vísa aftur. Tvíburarnir mínir sitja oft þar og fólk veifar oft og brosir til okkar. Það má alveg grínast með að við vekjum bros alls staðar í umferðinni.“

„Númerið verður smám saman partur af manni. Mér skilst að nú sé byrjað á því aftur að rukka fyrir einkanúmerin og ég veit ekki hvort ég tími því. Ef einhver hefur sérstakan áhuga á því að ég haldi því áfram getur sá hinn sami millifært á mig,“ grínast María með að lokum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×