Jól

Einfalt föndur: Skemmtilegt jóladagatal

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Á vefsíðunni Real Simple er að finna alveg hreint frábæra hugmynd að jóladagatali sem allir ættu að geta gert.

Í staðinn fyrir að kaupa hefðbundið jóladagatal er um að gera að safna saman 24 krukkum. Hægt er að mála þær í einhverjum fallegum litum og merkja þær með tölustöfum frá einum og upp í 24.

Svo er hægt að setja hvað sem er í krukkurnar - hvort sem það er sælgæti eða lítill glaðningur. 

Myndin hér til hliðar gefur ágætis innblástur en auðvitað er hægt að skreyta krukkurnar með alls konar skemmtilegheitum eins og límmiðum og glimmeri.








×