Eineltið mótaði Guðgeir - hataði líka lækna VG skrifar 26. júní 2012 09:55 Guðgeir Guðmundsson í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann sýndi engin svipbrigði þegar dómurinn var kveðinn upp. Í mati geðlækna segir að hann geti ekki myndað geðtengsl við annað fólk.
Það var einelti ásamt öðrum áföllum sem mótaði persónuleika Guðgeirs Guðmundssonar, sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í morgun fyrir tilraun til manndráps og hættulega líkamsárás. Guðgeir stakk framkvæmdastjóra Lagastoða, Skúla Sigurz, fimm sinnum í mars síðastliðnum og stakk svo Guðna Bergsson, samstarfsmann og lögfræðing, tvívegis í lærið þegar hann kom vinnufélaga sínum til bjargar. Í geðheilbrigðisrannsókn sem birtist í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Guðgeiri segir að lífsviðhorf Guðgeirs séu þannig að hann treysti ekki fólki og stendur í þeirri trú að það muni svíkja hann. Sá hugsunarháttur er afleiðing langvarandi eineltis í grunnskóla. Þá segir að Guðgeir sé með mörg einhverfueinkenni, bæli niður reiði og „springi" þegar reiðin leitar loks út. Þá segir ennfremur í matinu að Guðgeir hafi enga ánægju af mannlegum samskiptum, hafi flatar tilfinningar og engin geðtengsl við aðra. Svo segir orðrétt í matinu: „Ljóst sé að hann hafi enga eftirsjá varðandi glæp sinn, sem hann telji réttlætanlegan". Eins og áður hefur komið fram hataði Guðgeir lögfræðistéttina. Meðal annars sagði hann við Guðna Bergsson, skömmu eftir að sá síðarnefndi yfirbugaði Guðgeir, að þeir hefðu átt þetta skilið. Spurður hvað hann ætti við, svaraði hann: „Þið á lögfræðistofunni." Í dómnum kemur hinsvegar fram að lögfræðingar eru ekki eina starfsstéttin sem Guðgeiri er illa við, læknar eru einnig í þeim hópi án þess að andúð Guðgeirs á þeim sé útskýrð frekar. Guðgeir hefur einnig öfgafullar hugmyndir um trúmál. Í niðurstöðu geðmatsins kemur fram að Guðgeir sé talsvert mótaður af upplifunum sínum frá árum áður af miklu einelti. Heimsmynd hans er fremur neikvæð og þröng. Hann viðurkennir í raun að vissar aðstæður þar sem hann telur „svínað á sér" skapi hjá sér ofbeldishugsanir. Þannig lýsti hann því fyrir dómi að hann hefði stungið Skúla Sigurz af því hann taldi Skúla hafa glott sigri hrósandi framan í sig, og þannig gefið til kynna að honum hefði tekist á svína á Guðgeiri. Við tók hrottafengin árásin. Í öðru mati geðlæknis kemur fram að þegar leið frá atburðinum, og Guðgeir fór að róast, hefði komið fram hjá honum að hann væri hissa yfir því að hafa misst stjórn á sér. Hann hefði hins vegar ekki dýpri merki samviskubits eða sorgar vegna þess sem hann gerði. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að árásin hefði verið fyrirvaralaus, ofsafengin og lífshættuleg. Guðgeir eigi sér engar málsbætur.
Tengdar fréttir Guðgeir í fjórtán ára fangelsi Guðgeir Guðmundsson, sem réðst á Skúla Sigurz á lögmannsstofunni Lagastoð í mars, var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða Skúla þrjár milljónir króna í miskabætur. Guðgeir réðst jafnframt á Guðna Bergsson lögmann. Hann þarf að greiða Guðna átta hundruð þúsund í miskabætur. Árásin var hrottafengin og í ákæruskjalinu kemur fram að 50 lítrar af blóði runnu úr líkama Skúla eftir árásina. 26. júní 2012 09:07 Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira
Guðgeir í fjórtán ára fangelsi Guðgeir Guðmundsson, sem réðst á Skúla Sigurz á lögmannsstofunni Lagastoð í mars, var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða Skúla þrjár milljónir króna í miskabætur. Guðgeir réðst jafnframt á Guðna Bergsson lögmann. Hann þarf að greiða Guðna átta hundruð þúsund í miskabætur. Árásin var hrottafengin og í ákæruskjalinu kemur fram að 50 lítrar af blóði runnu úr líkama Skúla eftir árásina. 26. júní 2012 09:07