Lífið

Einbýlishús á 170 milljónir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tæplega sex hundruð fermetra einbýlishús við Sogaveg er komið á sölu en ásett verð eru 170 milljónir króna.

Möguleiki er að breyta húsinu í gistiheimili eða nokkrar íbúðir en eignin er búin þremur baðherbergjum, mörgum herbergjum, eldhúsi, íþróttasal og þvottahúsi. Þá er heitur pottur og gufa í húsinu.

Allar innréttingar eru afar fallegar og vandaðar. Útgengt er á svalir úr hjónaherberginu og því fylgir fataherbergi. 

Á neðstu hæð hússins eru tvær, stórar samliggjandi stofur og þar undir eru stórar geymslur. Úr þvottahúsinu er síðan útgengt í garðinn.

Hægt er að skoða eignina nánar hér.

Virðulegt hús.
Stórar stofur eru í húsinu.
Fallegt rými undir súð.
Stílhreint.
Einstakt baðherbergi.
Heitur pottur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×