Erlent

Einblína á að verjast íslamskri öfgastefnu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Donald Trump.
Donald Trump. Vísir/AFP
Ríkisstjórn Donalds Trump bandaríkjaforseta hyggst breyta og endurnefna ríkisáætlunina CVE sem ætlað er að verjast ofbeldissinnaðri hugmyndafræði. Hún mun eftir breytingarnar einvörðungu einblína á íslamska öfgastefnu.

Heimildir Reuters herma að eftir breytinguna muni áætlunin ekki ná til neinna annarra öfgahópa. Áhersla yrði til að mynda ekki lengur lögð á hópa sem telja hvíta kynstofninn öðrum æðri, en slíkir hópar hafa borið ábyrgð á ýmsum sprengju- og skotárásum í Bandaríkjunum.

Áætlunin hefur hingað til miðað að því að fyrirbyggja árásir með fræðslu og herferðum í samstarfi við fyrirtæki líkt og Google og Facebook.

Ýmsir stuðningsmenn átaksins hafa viðrað áhyggjur þess efnis að með breytingunni geti hin nýja ríkisstjórn átt erfiðara með samvinnu við múslima, sem gætu nú þegar átt erfitt með að treysta yfirvöldum. Þá sérstaklega eftir tilskipun forsetans sem meinaði ríkisborgurum sjö múslimalanda að ferðast til Bandaríkjanna.

Ýmsir þingmenn Repúblikanaflokksins hafa hins vegar löngum gagnrýnt átakið og sagt það gagnslaust. Þá hafa þeir einnig viljað meina að notkun á hugtakinu „öfga-Íslam“ gæti hjálpað til við að skerpa á áherslum átaksins.

Meira en þrjár milljónir Bandaríkjamanna eru múslimatrúar og telja margir að yfirvöld einangri þann stóra hóp borgara ef hugtakið „öfga-Íslam“ verður hluti af daglegu tali stjórnvalda.

Breytingin myndi ríma við kosningaloforð Trump og gagnrýni hans á Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem hann segir hafa verið of veiklunda í baráttunni gegn hryðjuverkasamtökunum ISIS. Þá hefur Trump einnig gagnrýnt fyrirrennara sinn fyrir að neita að nota hugtakið „öfga-Íslam.“ 


Tengdar fréttir

Trump sakar Demókrata um að flækjast fyrir sér

Segir Demókrata vísvitandi tefja fyrir því að nýir ráðherrar geti tekið til starfa. Demókratar neita að mæta til atkvæðagreiðslu í þingnefndum þar sem ráðherravalið er til staðfestingar. Búast má við að val Trumps á nýjum hæst




Fleiri fréttir

Sjá meira


×