Menning

Einar Már, Gunnar og Gunnar hljóta Ís­lensku bók­mennta­verð­launin

Bjarki Ármannsson skrifar
Einar Már Guðmundsson, Gunnar Helgason og Gunnar Þór Bjarnason hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2015.
Einar Már Guðmundsson, Gunnar Helgason og Gunnar Þór Bjarnason hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2015. Vísir/Stefán
Einar Már Guðmundsson, Gunnar Helgason og Gunnar Þór Bjarnason hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2015.

Forseti Íslands afhenti þeim verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

Hundadagar eftir Einar Má.
Einar Már var hlutskarpastur í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Hundadagar

Í flokki fagurbókmennta voru einnig tilnefnd þau Auður Jónsdóttir fyrir Stóra skjálfta, Hallgrímur Helgason fyrir Sjóveikur í München, Hermann Stefánsson fyrir Leiðina út í heim og Jón Kalmann Stefánsson fyrir Eitthvað á stærð við alheiminn.

Gunnar Helgason var verðlaunaður fyrir bókina Mamma klikk, sem þótti best barna- og ungmennabóka. 

Í þeim flokki hlutu einnig tilnefningu þau Arnar Már Arngrímsson fyrir Sölvasögu unglings, Gunnar Theódór Eggertsson fyrir Drauga-Dísu, Hildur Knútsdóttir fyrir Vetrarfrí og Þórdís Gísladóttir fyrir Randalín, Munda og afturgöngurnar.

Mamma klikk eftir Gunnar Helgason.
Gunnar Þór sigraði í flokki fræðirita og bóka almenns efnis með bókinni Þegar siðmenningin fór fjandans til: Íslendingar og stríðið mikla 1914 – 1918

Í þeim flokki voru einnig tilnefnd þau Dagný Kristjánsdóttir fyrir Bókabörn, Héðinn Unnsteinsson fyrir Vertu úlfur – wargus esto, Páll Baldvin Baldvinsson fyrir Stríðsárin 1938 – 1945 og Smári Geirsson fyrir Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915.

Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda.

Auk þess er verðlaunahöfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á Gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granít­stöpli með nafni verðlauna­höf­und­ar og bók­ar hans.

Þegar siðmenningin fór fjandans til eftir Gunnar Þór.
Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi fimmtán bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki.

Lokadómnefnd skipuðu Erna Guðrún Árnadóttir, Hildigunnur Sverrisdóttir, Pétur Þorsteinn Óskarsson og Árni Sigurjónsson, sem var jafnframt var formaður nefndarinnar.


Tengdar fréttir

Undrandi og ánægðir bókmenntaverðlaunahafar

Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir 2015 voru veitt í gær af forseta Íslands. Handhafar eru Einar Már Guðmundsson, Gunnar Helgason og Gunnar Þór Bjarnason. Hver um sig fær eina milljón króna.

Óumræðanlega frábær bók

Algjörlega – og óumræðilega – frábær saga sem fjallar um verðug málefni frá gelgjulegu sjónarhorni. Það er erfitt að leggja þessa fallegu og fyndnu bók frá sér.

Snerti þjóðina meira en margan grunar

Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur hefur skrifað bók um fyrri heimsstyrjöldina út frá sjónarhóli Íslendinga og áhrifa styrjaldarinnar á þjóðina.

Brúarsmiður eða farartálmi

Ævintýralegt efni og mikil frásagnargleði en frásagnar­aðferðin gæti valdið því að lesendur ættu erfitt með að tengjast hinum sögulegu persónum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×