Handbolti

Einar Andri gerir upp leik Íslands: Hlutirnir hrukku í baklás á lokakaflanum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Einar Andri Einarsson, þjálfari toppliðs Aftureldingar í Olís-deild karla í handbolta og sérfræðingur 365 um HM í handbolta, segir að íslenska landsliðið hafi lengst af spilað vel gegn því makedónska í gær.

Ísland var með undirtökin lengst af en Makedónía sótti í sig veðrið á lokakaflanum og knúði fram jafntefli, 27-27. Það þýðir að Íslendingar mæta Frökkum í 16-liða úrslitum í Lille á morgun.

„Það var búinn að vera góður taktur í því sem við vorum búnir að gera. Við byrjuðum illa en spiluðum frábærlega í 40 mínútur. Á þeim tíma fengum við mikið af auðveldum mörkum og það var mikið sjálfstraust í liðinu,“ sagði Einar Andri í samtali við Hörð Magnússon í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„En á síðustu 15 mínútunum hrökkva hlutirnir í baklás. Við fáum ekki þessi auðveldu mörk sem við höfðum fengið og þurftum að stilla upp á teig nánast í hvert skipti. Og það hefur verið vandamál hjá okkur á mótinu, þessi uppstillti sóknarleikur.“

Geir Sveinsson landsliðsþjálfari fékk mikla gagnrýni fyrir að taka ekki leikhlé í lokasókn Íslands sem endaði með skoti Rúnars Kárasonar sem var varið.

„Þetta er það sem við þjálfararnir erum alltaf að glíma við, hvenær rétti tímapunkturinn er. Að öllu jöfnu hefði maður vilja taka leikhléið þegar tæplega hálf mínúta er eftir,“ sagði Einar Andri og bætti við að færið sem Rúnari bauðst hafi reyndar verið áskjósanlegt.

Einar Andri segir svekkjandi að lenda í því að mæta heimsmeisturum og heimamönnum Frakka í 16-liða úrslitunum.

„Frammistaðan á löngum köflum í öllum þessum leikjum hefur verið mjög góð og við hefðum auðveldlega getað verið með fleiri stig. Miðað það sem strákarnir hafa lagt í þetta hefði óneitanlega verið skemmtilegra að mæta Norðmönnum, Brasilíumönnum eða Rússum. Í staðinn mætum við Frökkum á þeirra heimavelli, fyrir framan tæplega 30.000 manns og það verður verðugt verkefni,“ sagði Einar Andri.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Geir: Var á leið að borðinu að taka leikhlé

"Akkúrat núna er ég ókátur með að hafa ekki unnið,“ segir Geir Sveinsson landsliðsþjálfari en þó svo lið hans hafi kastað frá sér sigrinum er það komið í 16-liða úrslit.

Þeir verja hann ekki uppi frá Rúnari Kára

Rúnar Kárason hefur átt mörg þrumuskotin á HM í handbolta en íslenska landsliðið tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum með jafntefli á móti Makedóníu í lokaumferð riðlakeppninnar í gær.

Umfjöllun: Makedónía - Ísland 27-27 | Strákarnir köstuðu frá sér sigrinum

Strákarnir okkar munu mæta Frökkum í Lille á laugardag en ekki Norðmönnum í Albertville eftir að hafa kastað frá sér sigri gegn Makedóníu. Algert hrun á lokamínútunum og liðið mátti jafnvel telja sig heppið að hafa sloppið með jafntefli. En liðið er komið áfram og á það var stefnt.

Aron Rafn: Þetta var skítt

Aron Rafn Eðvarðsson átti fína innkomu í íslenska markið gegn Makedóníu en það dugði ekki til.

Lino Cervar: Ég er með sterkt hjarta

Lino Cervar, þjálfari Makedóníu, var sáttur eftir jafntefli á móti Íslandi í Metz á HM í handbolta í kvöld en stigið tryggði Makedóníu þriðja sætið í riðlinum og forðaði þeim frá því að mæta Frökkum í sextán liða úrslitunum.

Andlegt hrun á lokakaflanum

Strákarnir okkar náðu markmiði sínu að komast í 16-liða úrslit á HM en sú niðurstaða var ansi bitur eftir að liðið kastaði frá sér sigri gegn Makedóníu.

Aron Rafn veikur | Allir aðrir æfa

Strákarnir okkar eru nú á leið á æfingu á fótboltavellinum glæsilega Stade Pierre-Mauroy en það verður mikil upplifun fyrir þá að koma þangað inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×