Handbolti

Einar Andri: Óásættanlegt að menn séu ekki í topp formi í efstu deild

Flautað verður til leiks í Olís-deild karla annað kvöld, en Haukum var spáð Íslandsmeistaratitlinum. Hart verður barist í vetur og mörg lið hafa styrkt sig mikið.

„Deildin er gríðarlega sterk. Það eru engar smá kanónur komnar heim úr atvinnumennsku og öll lið hafa styrkt sig," sagði Einar Jónsson, þjálfari nýliða Stjörnunnar.

„Okkur er spáð sjötta sæti, enda búnir að styrkja okkur mikið og það sýnir sig að þetta er hörku erfið deild. Það verður gaman að fylgjast með Haukunum  í Evrópukeppninni og vona ég að þeir fari langt."

Álagið á leikmannahópana getur verið mikið. Leikin er þreföld umferð sem gera 27 leiki, auk bikarkeppni og Evrópukeppni hjá Haukunum.

„Við spiluðum 51 keppnisleik í fyrra og það er mikið álag, þess vegna erum við með breiðan og góðan hóp. Það á mikið eftir að gerast og meiðsli munu setja strik í reikninginn," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka.

Mikið hefur verið rætt og ritað um form leikmanna hér heima, en Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, segir að langmestur hluti leikmanna sé í góðu standi.

„Langstærsti hlutinn er í mjög góðu standi, en það er alltaf einhver hluti sem geta gert betur. Við þjálfararnir og leikmenn þurfum bara að svara fyrir það," sagði Einar.

„Ég held að það spili inní það sem ég sagði áðan að menn eru að sinna mörgum hlutum með þessu, en það er óásættanlegt að menn séu ekki í topp formi í efstu deild á Íslandi."

Allt innslagið Gaupa má sjá hér að ofan þar sem einnig er rætt við Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfara FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×