Enski boltinn

Einar: Við munum leita allra leiða

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stjórn Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, ákvað á fundi sínum fyrr í dag að veita Þýskalandi þátttökurétt á HM í Katar á næsta ári.

Þetta var gert eftir að ljóst varð að ekkert lið frá Eyjaálfu myndi taka þátt og var ákveðið að besta liðið frá HM 2013 á Spáni sem ekki hefði unnið sér inn þátttökurétt myndi komast til Katar. Það var Þýskaland sem hafnaði í fimmta sæti á Spáni.

Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóri HSÍ, er þó afar óánægður með þessa niðurstöðu þar sem Handknattleikssamband Evrópu, EHF, gaf út eftir að undankeppni HM lauk í vor að Ísland væri fyrsta varaþjóð á HM fyrir Evrópu.

„Ég er afskaplega undrandi á þessu,“ sagði Einar í samtali við Vísi í dag. „Við fengum þessar fréttir fyrir stuttu síðan og ég veit ekki hvar kemur fram í reglugerð IHF að stjórn sambandsins getur tekið sér það svigrúm að taka þessa ákvörðun.“

Hann segir að fyrst og fremst sé hann undrandi á því að Evrópuþjóð hafi verið valin inn sem ekki var á meðal þeirra þriggja varaþjóða sem EHF valdi. Ísland sé samkvæmt opinberu bréfi EHF fyrsta varaþjóð, svo Ungverjaland og að síðustu Serbía.

„Frá því að HM fór fram á Spáni hafa verið spilaðar álfukeppnir um allan heim þar sem meðal annars hefur verið undir þátttökuréttur á HM. Ísland náði góðum árangri á EM í Danmörku í fyrra en Þýskaland komst ekki einu sinni inn í þá keppni.“

Einar segir að margar spurningar komi upp þegar svona mál kemur upp. „Hvaða heimsálfa á rétt á sætinu þegar Eyjáálfuplássið losnar? Ef það er flókið að finna það út væri þá ekki réttast að láta fyrstu varaþjóðir allra hinna álfanna spila um aukasætið?“

„Við munum fara allar þær leiðir sem okkur standa til boða til að komast til botns í þessu - meðal annars að leita í þeim reglugerðum sem til eru. Það hlýtur að koma í hlut EHF að úthluta sætum til Evrópuþjóða.“

„Það hefur þegar farið fram eitt símtal á milli mín og EHF. En við bíðum enn frekari viðbragða þaðan,“ sagði Einar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×