Handbolti

Einar: Ekki eins gaman ef þetta verður algjört rugl

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Einar Jónsson er í atvinnuleit eftir að hafa staðið sig frábærlega með lið Molde í Noregi.
Einar Jónsson er í atvinnuleit eftir að hafa staðið sig frábærlega með lið Molde í Noregi. vísir/daníel
„Ég er að klára samninginn minn hér og ég veit ekkert hvað tekur svo við. Það er þó alveg ljóst að ég er hættur hjá Molde,“ segir Einar Jónsson en framtíð hans er í óvissu eftir að hann sagði upp samningi sínum hjá Molde.

Einar gerði sér lítið fyrir og kom Molde upp um tvær deildar á tveimur árum og liðið er því komið í úrvalsdeildina. Einar kaus aftur á móti að segja upp samningi sínum við félagið og hefur ekki gengið að fá nýjan samning. Tíma hans hjá félaginu er því lokið.

„Það hefur í raun ekkert gerst. Það hafa verið smá þreifingar en ekkert sem ég get sætt mig við. Þær forsendur sem ég gaf mér til að vera áfram eru ekki til staðar. Því hef ég tekið ákvörðun um að finna mér eitthvað annað að gera.“

Það er ýmislegt í óvissu hjá félaginu hvað varðar framhaldið og það hefur ekki hjálpað til. „Þeir hafa lýst yfir vilja til að halda mér en þegar kemur að því að ræða samningamál verður lítið úr þeim viðræðum. Það virðist hvorki vera nægur vilji né fjárhagsleg geta til þess að taka næsta skref. Ég tel mig ekki með óraunhæfar launakröfur. Það er ný stjórn að taka við og hún er að taka sér fulllangan tíma til þess að setja sig inn í hlutina.“

Þjálfarinn er með samning við Molde út maí en hvað tekur við þá er óráðið. „Það eru einhverjar fyrirspurnir og þreifingar en ekkert alvarlegt. Það er áhugi hjá mér að vera áfram úti en ég þarf ekkert að vera í útlöndum bara til að vera í útlöndum. Það þarf að vera eitthvað áhugavert. Sama með Ísland. Ef það er áhugavert starf í boði þar sem hentar mér og fjölskyldu minni vel þá er það eitthvað sem ég myndi skoða,“ segir Einar, en er ekki svekkjandi að ævintýrinu sé lokið þegar hann er loks kominn með liðið upp í úrvalsdeild?

„Það átti enginn von á þessu. Félagið var ekki undirbúið undir þetta. Þetta er búið að vera gaman og að hafa náð þessum árangri. Ég geng stoltur frá borði. Auðvitað hefði verið gaman að halda áfram með verkefnið en að sama skapi ekki eins gaman ef þetta væri algert rugl og við ekki með lið sem ætti möguleika í deildinni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×