Menning

Ein tæknilegasta sýning sem ég hef unnið við

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Það er eins og opnast hafi fyrir slagæð hugmynda hjá mér, þær bara flæða,“ segir Kristjana kát.
"Það er eins og opnast hafi fyrir slagæð hugmynda hjá mér, þær bara flæða,“ segir Kristjana kát. Vísir/Eyþór
Hér er á ferðinni nýr söngleikur. Handritið er eftir Andra Snæ en leikgerðin eftir Berg Þór Ingólfsson og hann samdi nýja söngtexta sem ég gerði ný lög við, alls fimmtán talsins.“ Þetta segir Kristjana Stefánsdóttir tónlistarkona um Bláa hnöttinn sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu nú á laugardaginn.

Eins og samnefnd bók er sýningin ævintýri þar sem brýnt er fyrir fólki að hlaupa ekki eftir innantómu stuði. Tuttugu og tvö börn eru í sýningunni og þau fljúga út um allt svið að sögn Kristjönu. „Þetta er ein tæknilegasta sýning sem ég hef unnið við í leikhúsi,“ segir hún.



Kristjana kveðst hafa samið lögin að mestu á fyrstu sex mánuðum ársins, ásamt því að klára trúðasýningu með álíka mörgum lögum og líka sína fyrstu sólóplötu með eigin tónsmíðum. „Það er eins og það hafi opnast ný slagæð með hugmyndum hjá mér. Þær bara flæða,“ segir hún glaðlega.



Miklar pælingar liggja bak við lögin í Bláa hnettinum eins og hún lýsir. „Gleðiglaumur kemur inn á þennan bláa hnött og gerir þar usla og því hef ég öll lögin hans dálítið virkjana- og iðnvæðingarleg. En tónlist sem hljómar í dökka heiminum er sinfónísk, þar er samt bland í poka.“

Börnin eru með míkrófóna og söngurinn er allur lifandi en undirleikurinn ekki, að sögn Kristjönu. „Nú fékk ég í fyrsta skipti alvöru upptökustjóra með mér. Daði Birgisson spilar á öll hljóðfærin og við eigum útsetningarnar saman. Það er dýrmætt að fá slíkan fagmann með sér.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×