Lífið

Ein stærsta YouTube stjarna heims setti hundrað lög af förðun á andlitið - Myndbandið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Marbles með enn eitt frábært myndband.
Marbles með enn eitt frábært myndband.
Jenna Nicole Mourey betur þekkt sem YouTube stjarnan Jenna Marbles er með yfir 16 milljónir fylgjendur á YouTube. Hún setur reglulega inn skemmtileg myndbönd sem njóta vinsældra.

YouTube-rás hennar er sú sjöunda stærsta á vefsíðunni og sú stærsta ef aðeins er litið til rása sem stjórnaðar eru af konum.

Nýjasta myndbandið hennar er stórgott en þar ákvað hún að setja hundrað lög af förðun á andlitið sem endar með því að hún er algjörlega óþekkjanleg. Þegar þessi frétt er skrifuð hafa um 7,5 milljónir manna horft á myndbandið sem sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×