Erlent

Ein milljón í skiptum fyrir flugsætið

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Flugfélagið hefur verið gagnrýnt fyrir harðneskjulega meðferð gagnvart manninum.
Flugfélagið hefur verið gagnrýnt fyrir harðneskjulega meðferð gagnvart manninum.
Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur breytt verklagsreglum sínum eftir umdeilt atvik á dögunum þegar farþegi í yfirfullri flugvél var bókstaflega dreginn út úr vélinni. Flugfélagið mun framvegis bjóða þeim sem reiðubúnir eru að láta sæti sitt af hendi, þegar vélarnar eru fullar, samtals tíu þúsund dollara, eða rúmlega eina milljón króna, í bætur.

Samkvæmt nýju reglunum verða farþegar ekki fjarlægðir með valdi nema af öryggisástæðum og þá verður engum gert að yfirgefa vélina nema að fengnu samþykki. Þjálfun starfsmanna verður einnig aukin og áhöfninni verður gert að innrita sig um borð að minnsta kosti einni klukkustund fyrir brottför.

Dreginn með valdi

Myndskeið náðist af umræddu atviki þegar David Dao, 69 ára læknir, var dreginn með valdi úr vél United Airlines eftir að í ljós kom að vélin var yfirbókuð.

Félagið hafði boðið farþegum 400 dollara í bætur auk 800 dollara inneignar og hótelgistingar í skiptum fyrir sætið, en þegar enginn tók boðinu voru fjórir valdir af handahófi og þeim vísað frá borði. Dao var einn þeirra. Hann sagðist hins vegar vinnu sinnar vegna ekki geta farið frá borði og streittist á móti þegar öryggislögregla vísaði honum út. Dao missti tvær tennur og nefbrotnaði í átökunum.

Forstjóri félagsins hefur beðist opinberlega afsökunar á málinu.

Ýmislegt fleira hefur þó drifið á daga flugfélagsins að undanförnu. Nú stendur yfir rannsókn á dauða risakanínu sem fannst dauð í farmi vélarinnar í vikunni. Kanínan, sem var 10 mánaða og 90 sentímetra löng, var á leið til nýs eiganda sem að sögn breska ríkisútvarpsins er frægur einstaklingur. Þá segir jafnframt að óalgengt sé að dýr drepist um borð í flugvélum. United Airlines sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem félagið sagðist harma málið mjög.

Þá féll sporðdreki úr farangurshólfi og stakk mann um borð í vél United Airlines 14. apríl síðastliðinn, þann sama dag og David Dao var dreginn úr vél félagsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×