Lífið

Ein af stjörnum kosninganæturinnar skildi ekki af hverju svo margir vildu taka „selfie“ með honum

Birgir Olgeirsson skrifar
Hér má sjá Boga Ágústsson óska eftir tölum frá Birni Davíðssyni í kosningasjónvarpinu.
Hér má sjá Boga Ágústsson óska eftir tölum frá Birni Davíðssyni í kosningasjónvarpinu. Skjáskot RÚV
„Ef ég hefði ímyndað mér þessi viðbrögð hefði ég mætt í einhverju skærara,“ segir Björn Davíðsson, formaður kjörstjórnar Ísafjarðarbæjar, en hann sló heldur betur í gegn í kosningasjónvarpinu í gær þegar hann las upp tölur frá Ísafjarðarbæ í beinni útsendingu.

Björn var klæddur í forláta Havaí-skyrtu og vakti uppátækið mikla athygli þar sem margir höfðu orð á klæðaburði Björns og skrifuðu skemmtilega um þetta fataval.

Björn var þó alveg grunlaus um athyglina. Það var ekki fyrr en hann tók rölt á kosningaskrifstofur á Ísafirði sem honum var sagt frá því að hann hefði slegið í gegn.

„Það voru margir sem vildu taka selfie af sér með mér, sem ég átti ekki von á, en ég fékk fljótt skýringar á því,“ segir Björn.

Hann segist ekki óvanur að ganga í svona skyrtum frá degi til dags, sérstaklega á sumrin og það kemur fyrir að hann fari í þær á veturna.

Björn ákvað að sýna fólki að um hefði verið að ræða fremur hógværa skyrtu úr fataskáp hans. Hann skellti sér því í mun skærari skyrtu á kosninganótt. „Og hún féll ekkert síður í kramið.“

Spurður hvort að það séu einhverjar reglur um klæðaburð þegar kemur að kjörstjórn segir hann svo vera, en það sé kveðið á um snyrtilegan klæðnað.

„Að menn séu ekki í tættum klæðnaði eða mikið notuðum. Menn séu bara hreinlega snyrtilega klæddir, það er það sem er farið fram á.“

Hann tekur fram að það þurfi þó að huga vel að klæðnaði þegar atkvæði eru talin, því það getur gengið ansi mikið á.

„Það er ekki gott að vera í fatnaði sem er of heitur og þá klæðir maður sig fyrst og fremst þægilega. Ég átti ekki von á þessu og gerði mér ekki grein fyrir að svona skyrta myndi vekja svo mikla athygli. Þetta er í sjálfu sér skemmtilegt atvik,“ segir Björn.

Hann rekur tölvu- og netþjónustufyrirtækið Snerpu á Vestfjörðum en hann var einn af þeim sem stofnuðu fyrirtækið árið 1994. Björn er ættaður úr Dýrafirði og er bróðir rithöfundarins Vilborgar Davíðsdóttur.

Hann segist kaupa skyrturnar á ferðalögum sínum erlendis. Hann hefur keypt þær til dæmis í Kanada og á Jamaíka og sá gríðarlegt úrval af þessum skyrtum í Japan en átti erfitt með að finna stærð sem passaði á hann þar því Japanir séu smærri í smíðum en hann.

„Ég hef átt svona skyrtur hátt í tuttugu ár. Ég geng ekki í þeim dags daglega, í vinnu eða slíku, en ég nota þær samt sem áður töluvert,“ segir Björn.

Hann á allt eins von á því að vera áfram í kjörstjórn í næstu kosningum og þá verður samskonar skyrta fyrir valinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×