Ein af hverjum tíu orðið fyrir kynferðisofbeldi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 9. september 2014 18:30 Um 120 milljón stúlkur um heim allan hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir tuttugu ára aldur.
Um 120 milljón stúlkur um heim allan, eða rúmlega ein af hverjum tíu, hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun áður en þær ná tuttugu ára aldri. Þetta leiðir ný skýrsla frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í ljós. Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF, segir tölurnar sláandi. „Þessar tölur eru verulega sláandi og það er nauðsynlegt að taka þessu alvarlega. Bráðnauðsynlegt er að ýta þessum málefnum ofar í forgangsröðun stjórnvalda því þau verða ekki leyst með einföldum hætti,“ segir Stefán.Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF.UNICEF á Íslandi gaf út skýrsluna Réttindi barna: Ofbeldi og forvarnir í mars á síðasta ári. Í kjölfar skýrslunnar voru lagðar fram sextán tillögur að úrbótum og vinnur hópur á þeirra vegum markvisst að því að draga úr þessum mörgu tilfellum ofbeldis sem börn á Íslandi verða fyrir. „Það þarf að vekja athygli á ofbeldinu og fyrsta skrefið er að horfast í augu við umfangið og reyna að skilja hvers vegna svona mörg börn verða fyrir ofbeldi.“ Skýrslan nefnist Hidden in Plain Sight er gerð af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þar kemur jafnframt fram að árið 2012 hafi 95 þúsund börn og unglingar verið myrt í heiminum öllum. Flest morðanna voru framin í Suður-Ameríku og Karíbahafinu. Rannsóknin tók til 190 landa og leiddi einnig í ljós að sex af hverjum tíu börnum á aldrinum tveggja til fjórtán ára eru beitt líkamlegum refsingum af forráðamönnum sínum.
Mest lesið Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Innlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Innlent Fleiri fréttir Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Fannst hennar tími vera kominn Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Réðst á barn sem gerði dyraat Sjá meira