Innlent

Ein af hverjum fjórum í Malaví fær ekki menntun

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Anjimile Oponyo Ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis Malaví segir aðstoð Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hafa verið mikilvæga.
fréttablaðið/Daníel
Anjimile Oponyo Ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis Malaví segir aðstoð Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hafa verið mikilvæga. fréttablaðið/Daníel
„Ég var bara heppin. Ég hefði getað flosnað upp úr námi eins og margar skólasystur mínar ef faðir minn hefði ekki lagt mikla áherslu á að við systkinin hlytum góða menntun. Það var mjög óvenjulegt.“ Þetta segir Anjimile Oponyo, ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis Malaví í Afríku, sem kom til Íslands í tengslum við átaksviku frjálsra félagasamtaka og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands um mikilvægi og gildi þróunarsamvinnu.

Oponyo hlaut skólastyrk frá Alþjóðabankanum til framhaldsnáms í kennslufræðum í Bandaríkjunum. „Menntunin hefur bjargað lífi mínu. Vegna hennar hef ég sjálf getað tekið ákvarðanir sem varða mitt líf. Ég vildi óska þess að allar stúlkur í Malaví hefðu kost á því sama og ég hafði.“

Hún telur að um fjórðungur allra stúlkna í Malaví fái ekki eðlilega skólagöngu. „Sumar koma ekki í skóla fyrr en þær eru orðnar tíu ára og hætta um 14 til 15 ára gamlar þegar þær eru látnar ganga í hjónaband. Aðrar verða að hætta vegna þess að þær hafa misst foreldra sína úr til dæmis alnæmi og verða að sjá um sig sjálfar og systkini sín. Fjölmörg dæmi eru um að foreldrar láti ekki stúlkur fara í skóla vegna þess hversu langar vegalengdir þær þurfa að fara gangandi. Skólarnir sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur aðstoðað við að koma upp í Mangochi-héraði í Malaví hafa gert mörgum kleift að sækja sér menntun. Með því að byggja víða komast fleiri í skóla.“

Að sögn Oponyo eru dæmi um að 150 börn séu saman í kennslusal á fyrstu stigum grunnskólans. Á síðustu stigum grunnskólans og fyrstu stigum framhaldsskóla kemur fyrir að um 300 nemendur séu saman í kennslusal í 1.000 nemenda skóla. „Ég var í heimsókn í grunnskóla hér og þar voru 15 börn í bekknum og þau höfðu alls kyns kennslugögn sem okkur skortir sárlega. Heima í Malaví er ekki hægt að sjá öllum fyrir kennslugögnum þannig að sum barnanna þurfa að deila þeim með öðrum. Hér hef ég séð hvernig skólastarf getur virkað vel ef nægar kennslustofur og skólagögn eru fyrir hendi.“

Sú leið sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur valið til að aðstoða heimamenn í Malaví hefur fyllt þá sjálfstrausti, að því er Oponyo greinir frá. „Stofnunin hefur spurt um þarfir okkar og svo gefið okkur tækifæri til þess að stýra sjálf verkefnum. Það hefur jákvæð áhrif á heimamenn, þeir verða ánægðir og finna hvers þeir eru megnugir.“

Oponyo telur að mögulega hafi stutt skólaganga föður hennar, sem var lögreglumaður og tónlistarmaður, átt sinn þátt í því að hann hvatti börnin sín, fjórar stúlkur og einn son, til að ganga menntaveginn. Elsta systir hennar, Joyce Banda, er nú forseti Malaví.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×