Erlent

Ein af fjórum ESB-undanþágum undir í tvísýnum kosningum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra hvetur Dani til að samþykkja breytinguna.
Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra hvetur Dani til að samþykkja breytinguna. Vísir/EPA
Danir verða í dag spurðir hvort breyta eigi einni af fjórum ESB-undanþágum þeirra, nefnilega undanþágu frá samstarfi í innanríkis- og dómsmálum, yfir í sveigjanlega eða valkvæða undanþágu.

Verði tillagan samþykkt getur Danmörk valið að taka þátt í sumum málaflokkum innanríkis- og dómsmála, frekar en að vera skilyrðislaust undanþegin samstarfi í öllum málaflokkum á þessu sviði.

Ástæða þess, að efnt er til þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta nú, er að ýmsar breytingar hafa orðið á löggjöf Evrópusambandsins frá árinu 1993, þegar Danmörk fékk fjórar undanþágur frá Maastricht-sáttmálanum.

Þessar breytingar þýða meðal annars að Europol, lögreglusamstarf ESB-ríkjanna, fer undir yfirþjóðlegt vald Evrópusambandsins í staðinn fyrir að vera áfram milliríkjasamstarf.

Samkvæmt skoðanakönnun Epinion fyrir danska ríkisútvarpið hafa já-sinnar verið 32 prósent síðustu vikurnar, en nei-sinnar hafa sveiflast frá 34 prósentum þann 16. nóvember, niður í 29 prósent 23. nóvember og svo upp í 36 prósent þann 1. desember.

Aðrar kannanir hafa ýmist sýnt nei-hliðina eða já-hliðina standa betur. Þjóðin virðist klofin til helminga.

Óákveðnir eru nú 25 prósent, en voru 34 prósent fyrir hálfum mánuði.

Flestir stjórnmálaflokkar hvetja til að breytin verði samþykkt. Það á bæði við um stjórnarflokkinn Venstre og helstu stjórnarandstöðuflokkana á vinstri jafnt sem hægri vængnum, en Danski þjóðarflokkurinn er í forystu nei-sinna ásamt Frjálslynda bandalaginu og Einingarlistanum.

Nei-sinnar virðast einna helst hafa áhyggjur af því að Danmörk þurfi að taka upp stefnu Evrópusambandsins í málefnum flóttamanna, en Lars Løkke Ras­mussen forsætisráðherra hefur lofað því að vilji dönsk stjórnvöld fara þá leiðina verði þau að bera það undir þjóðaratkvæði: „Ég hef engin áform um það, en ef það kæmi til tals þá yrði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Løkke í sjónvarpsumræðum í vikunni.

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, er væntanlega einn þeirra sem bíða harla spenntir eftir úrslitunum í kvöld. Cameron hefur sjálfur farið fram á breytingar á stöðu Bretlands gagnvart Evrópusambandinu og ætlar að bjóða Bretum upp á þjóðaratkvæðagreiðslu um útkomuna strax á næsta ári eða þarnæsta.

Afstaða dönsku þjóðarinnar getur skipt máli þegar Cameron kynnir hinum leiðtogum Evrópusambandsríkjanna kröfur sínar innan fárra vikna. gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×