Golf

Eimskipsmótaröðin | Spenna á Akureyri fyrir lokahringinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Gsimyndir.net
Gísli Sveinbergsson, GK, Tinna Jóhannsdóttir, GK, og Karen Guðnadóttir, GS, leiða fyrir lokahringina á Jaðarsvelli á Akureyri, en mótið er sjötta og síðasta stigamót GSÍ sem fer fram í sumar.

Gísli Sveinbergsson, kylfingurinn efnilegi úr GK, er í fyrsta sæti hjá körlunum eftir fyrstu tvo hringina, en Gísli er að berjast um að hirða annað sætið á stigamótaröðinni.

Gísli hefur samtals leikið hringina tvo samtals á einu höggi undir pari; 70 og 71. Næstir koma þeir Andri Már Óskarsson, GHR, og stigameistarinn Kristján Þór Einarsson, GKJ, en þeir eru báðir á samtals 143 höggum, einu yfir pari.

Eins og fyrr segir hefur Kristján Þór nú þegar tryggt sér stigameistaratitilinn, en mikil spenna er kvennamegin. Tinna Jóhannsdóttir, GK, og Karen Guðnadóttir, GS, eru á samtals 150 höggum og leiða eftir hringina tvo, en þær eru samtals á átta yfir pari. Karen er efst á stigalistanum fyrir mótið og er í góðri stöðu fyrir lokadaginn.

Í þriðja sæti er Særós Eva Óskarsdóttir, GKG, á samtals 153 höggum eða ellefu yfir pari.

Á morgun fer fram lokahringurinn, en lokahollin fara út í kringum tíu þannig lokatölur eru væntanlegar um tvö leytið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×