Menning

Eigum eflaust höfðatölumet í þessu eins og öðru

Magnús Guðmundsson skrifar
Daníel Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á opnunartónleikum Myrkra músíkdaga í kvöld.
Daníel Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á opnunartónleikum Myrkra músíkdaga í kvöld. Visir/Ernir
Opnunartónleikar Myrkra músíkdaga í ár eru stórtónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Efnisskráin er einkar glæsileg en á tónleikunum verða m.a. frumfluttir tveir nýir íslenskir konsertar. Tónleikarnir hefjast með frumflutningi Melkorku Ólafsdóttur þverflautuleikara á nýjum konsert eftir Áskel Másson fyrir sólóflautu, hörpu, slagverk og strengi. Tónverkið Strati eftir Hauk Tómasson er næst á dagskrá en verkið var frumflutt árið 1992 og hlaut Haukur Tónskáldaverðlaun Ríkisútvarpsins fyrir verkið tveimur árum síðar. Eina erlenda verkið á efnisskránni er Act eftir Rolf Wallin, eitt helsta nútímatónskáld Norðmanna. Síðast á dagskrá er svo frumflutningur Víkings Heiðars Ólafssonar á píanókonsert Þórðar Magnússonar.

Stjórnandi á tónleikunum er Daníel Bjarnason og hann segir það gleðiefni að Sinfóníuhljómsveitin sé að fara að frumflytja tvo nýja íslenska konserta á einu kvöldi. „Áskell samdi flautukonsertinn sérstaklega fyrir Melkorku Ólafsdóttur. Það er náttúrustemning í þessu verki sem er mjög fallegt og það er fyrir aðeins minni hljómsveit, aðallega strengi, slagverk og hörpu auk flautuleikarans. Áskell heyrði Melkorku spila Takemitsu-konsert með hljómsveitinni fyrir nokkrum árum og hreifst svo af þeim flutningi að hann samdi þetta verk sérstaklega fyrir hana í framhaldinu, innblásið af þeim flutningi.“

Hinn konsertinn er hins vegar stór og mikill píanókonsert eftir Þórð sem Víkingur spilar. „Það er gaman að því að þetta eru mjög ólík verk, þau eiginlega gætu ekki verið ólíkari. En þau sýna líka skemmtilega ólíkar hliðar og hversu mikil fjölbreytni er í því sem er að gerast í nýrri íslenskri tónlist.“

Mikilvægt að staldra við

Það er óneitanlega kynslóðamunur á tónskáldunum að baki verkum kvöldsins en Daníel segist ekki hafa hugsað þetta út frá því. „Í akkúrat þessu prógrammi þá hef ég ekki spáð í þetta. Ég held að maður þurfi að taka fleiri verk til þess að finna fyrir kynslóðamun. Þetta er frekar spurning um persónueinkenni tónskáldanna. Það eru mjög skýr höfundareinkenni á öllum þessum íslensku verkum en kannski er helst hægt að segja að verk Áskels sé aðeins óvenjulegt fyrir hann. Hann hefur skrifað mikið af konsertum og þetta verk hefur sterkan lit sem sker sig aðeins frá öðru sem hann hefur skrifað en svo eru höfundareinkennin líka til staðar þrátt fyrir allt.

En það er líka gaman að hafa þarna eldra verk eftir Hauk, sem er eitt af okkar bestu tónskáldum, því það gefur okkur tækifæri til þess að skoða það að nýju. Það er mikilvægt að við tökum þessi eldri verk tónskáldanna okkar og flytjum þau aftur en flytjum ekki alltaf bara nýjustu verkin vegna þess að það þarf stundum að staldra við og líta til baka.“

Mikilvægir tónleikar

Daníel tekur undir að það sé sannkallað blómaskeið um þessar mundir í íslenskri tónlist. „Já, ekki spurning. Það eru margir að semja og mikill áhugi, ekki bara hér heldur úti um allan heim, á nýrri skrifaðri íslenskri tónlist. Við vitum öll um áhugann á popptónlist en það er líka mjög mikill áhugi á skrifaðri íslenskri tónlist og hann finnst mér alltaf vera að aukast. Það eru í raun ótrúlega mörg íslensk tónskáld að semja eftir pöntun út fyrir landsteinana, svo mörg að ætli við eigum ekki einhvers konar höfðatölumet í því eins og öðru.

Hátíð á borð við Myrka músíkdaga er líka rosalega mikilvæg fyrir alla sem að þessu koma. Bæði er hægt að heyra ákaflega mikið af nýjum verkum og því sem er að gerast í dag og svo hefur þessi hátíð á síðustu árum alltaf verið að verða meira og meira alþjóðleg. Það kemur talsvert af blaðamönnum og útvarpsmönnum víða að úr heiminum til þess að fylgjast með og þannig getur þetta verið ákveðinn gluggi út í heim. Af tónleikum hljómsveitarinnar yfir starfsárið eru þetta líklega þeir tónleikar sem eru að fá mesta alþjólega athygli. Fólk kemur utan úr heimi til þess að heyra hvað er að gerast og þá heyrir það líka í hljómsveitinni þannig að fyrir mér eru þetta einir af mikilvægustu tónleikum ársins fyrir Sinfóníuna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×