Lífið

Eignaðist litla hnátu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sjónvarpsmaðurinn Carson Daly og unnusta hans Siri Pinter eignuðust stúlku í gær sem hefur hlotið nafnið London Rose Daly.

Carson og Siri tilkynntu það í mars á þessu ári að þau ættu von á barni en fyrir eiga þau soninn Jackson James, fimm ára og dótturina Ettu Jones, 23 mánaða. 

Carson er í skýjunum og segir í samtali við Today að hann sé stoltur af unnustu sinni.

„Siri er baráttujaxl og ég er forviða yfir stillingu hennar, þokka og styrk í þessu ferli sem er kraftaverki líkast. Þegar ég sá Jack og Ettu hitta nýju systur sína fannst mér eins og ég væri að horfa á senu úr bíómynd sem var leikstýrt af Guði,“ segir Carson.

Carson bað Siri í október á síðasta ári eftir sex ára samband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×