Körfubolti

Eiginkona þjálfarans fjárlægð með valdi úr húsinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiginkona þjálfara Wichita State-háskólans tók tapi síns liðs í háskólaboltanum gegn Kentucky frekar illa.

Konan heitir Lynn Marshall og var fyrir það fyrsta alveg snarbrjáluð meðan á leiknum stóð og róaðist ekki mikið eftir leikinn.

Þá rigndi ókvæðisorðum að öllum nærstöddum og endaði það með því að lögreglan leiddi hana út úr húsinu. Frú Marshall var allt annað en sátt við það.

Meðan á leiknum stóð var hún í þrígang beðin um að róa sig niður en það skilaði engu. Hún hélt áfram að láta öllum illum látum. Hér að ofan má sjá myndband af henni í stuði á leiknum.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Marshall vekur athygli fyrir að vera með læti í stúkunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×