Innlent

Eiginkona skipverjans: „Þetta var mikið sjokk“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Eiginkona skipverjans í Eyjum segir að hún viti lítið um hvað gerðist enn sem komið er.
Eiginkona skipverjans í Eyjum segir að hún viti lítið um hvað gerðist enn sem komið er. Mynd/Tryggvi Sigurðsson
Eiginkona skipverjans sem var einn um borð í Brandi VE þegar eldur kom uppi í bátnum segir að sér hafi verið mjög brugðið þegar hún fékk fréttir af eldinum. Það var maðurinn hennar sjálfur sem hringdi í hana og sagði henni hvað hafði gerst.

Drífa Þöll Arnardóttir, eiginkona Gunnlaugs Erlendssonar skipverja, segir að hún viti lítið um hvað gerðist enn sem komið er. „Ég hef ekki náð að tala við manninn minn neitt almennilega,“ segir hún í samtali við fréttastofu. Gunnlaugur er enn í skýrslutökum vegna atviksins.

„Mjög erfitt“ að fá fréttirnar

Búið er að slökkva eldinn sem kviknaði í hádeginu. Báturinn er gerður út frá Vestmannaeyjum, þar sem þau Drífa og Gunnlaugur eru búsett, og var hann einn um borð þegar atvikið átti sér stað.

En hvernig var þér við að fá þessar fréttir? „Þetta var náttúrulega mjög erfitt. Það er ekki hægt að segja það neitt öðruvísi,“ segir hún. „Þetta var mikið sjokk.“

Gunnlaugur komst yfir í fiskiskipið FRÁR VE um tíu mínútum eftir að útkallið barst en skipið var í grenndinni. eftir að hafa sent neyðarkall. Björgunarfélag Vestmannaeyja fór strax af stað og var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang, en hún var stuttu frá vettvangi þegar neyðarkallið barst.

Drífa segir það þvílíka lukku að ekki hafi farið verr.

Báturinn er gjörónýtur, líkt og sést á þessari mynd.vísir/óskar
Sáu bara reykinn

Sigurður Jóhann Ingibergsson, háseti á Frá, segir björgunaraðgerðirnar hafa gengið vel. Skipverjum hafi þó verið nokkuð brugðið, líkt og Gunnlaugi. 

„Við vorum að hreinsa trollið þegar skipstjórinn tók eftir reyk í smá fjarlægð. Við tókum því stefnuna þangað og komum þá auga á neyðarsól,“ segir Sigurður.  

Sigurður segir að þeir hafi ekki séð eldinn þegar þeir sigldu upp að trillunni. „Það var enginn sjáanlegur eldur, bara reykur. Við sigldum upp að bátnum og hífðum björgunarbátinn um borð, og þetta gekk allt mjög vel fyrir sig,“ segir hann.

Brandur VE er 35 ára bátur smíðaður í Noregi. Hann er úr trefjaplasti og vélin er síðan árið 2002, samkvæmt upplýsingum úr skipaskrá. HAnn er 8,7 metrar að lengd og 1,75 nettótonn að þyngd.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×