Fótbolti

Eiginkona Rooney leigði lúxusrútu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rútan getur ekki keyrt fjölskylduna alla leið en hér er Coleen ásamt strákunum, sem hún á með Rooney, að labba síðasta spölinn á völlinn.
Rútan getur ekki keyrt fjölskylduna alla leið en hér er Coleen ásamt strákunum, sem hún á með Rooney, að labba síðasta spölinn á völlinn. vísir/getty
Eiginkonur ensku landsliðsmannanna í knattspyrnu vekja venjulega eftirtekt á stórmótum.

Þar fer fremst í flokki Coleen Rooney, eiginkona fyrirliða enska liðsins, Wayne Rooney.

Hún gerði sér lítið fyrir við komuna til Frakklands og leigði risastóra lúxusrútu fyrir alla fjölskylduna.

Rútan er á tveimur hæðum og er venjulega í útleigu hjá vinsælum tónlistarmönnum.

Coleen var himinlifandi er hún hafði skoðað rútuna og það mun ekki væsa um fjölskylduna er hún ferðast á milli leikstaða til þess að horfa á enska landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×