Erlent

Eiginkona Mateen mögulega ákærð

Samúel Karl Ólason skrifar
Saksóknarar í Orlando hafa skipað sérstaka dómsnefnd sem ákveða á hvort að ákæra eigi eiginkonu Omar MateenNoor Salman er sögð hafa vitað af ætlun eiginmanns síns að fremja fjöldamorð á skemmtistaðnum Pulse í Orlando um helgina. Hún hefur sagt rannsakendum að hún hafi reynt að tala eiginmann sinn ofan af árásinni.

Omar Mateen myrti 49 á skemmtistaðnum sem var vinsæll meðal hinsegin fólks. Hann særði 53 og þar af eru sex í alvarlegu ástandi. Um er að ræða mannskæðustu skotárás í sögu Bandaríkjanna.

Kannað er hvort að Salman verði ákærð fyrir aðkomu að 49 morðum og 53 morðtilraunum þar sem hún vissi af árásinni og lét yfirvöld ekki vita, né varaði engan við. Þá segja miðlar úti að Mateen hafi hringt í eiginkonu sína á meðan á árásinni stóð.

Sjá einnig: Eiginkona Mateen reyndi að tala hann ofan af árásinni á Pulse

Yfirvöld rannsaka nú fregnir af því að Mateen hafi margsinnis sótt Pulse heim og hafi verið í samskiptum við aðra menn á samfélagsmiðlum og stefnumótaforritum.

Á meðan á árásinni stóð hringdi Mateen í Neyðarlínuna og lýsti því yfir að hann væri hliðhollur Íslamska ríkinu. Hins vegar hafa engar vísbendingar fundist um að hann hafi verið í nokkrum samskiptum við ISIS eða önnur hryðjuverkasamtök.


Tengdar fréttir

Byssueignin er vandamálið vestanhafs

Bandaríkjamenn styðja frelsi fólks til skotvopnaeignar þrátt fyrir mannfall í skotárásum þar. Litlar breytingar eru í sjónmáli á skotvopnalöggjöf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×