Innlent

Eigandi Strawberries verður ekki ákærður fyrir vændi

Bjarki Ármannsson skrifar
Eiganda kampavínsklúbbsins verður ekki birt ákæra fyrir vændi, mansal eða fyrir að hafa haft milligöngu um vændi.
Eiganda kampavínsklúbbsins verður ekki birt ákæra fyrir vændi, mansal eða fyrir að hafa haft milligöngu um vændi. Vísir/Stefán
Viðari Má Friðfinnssyni, eiganda kampavínsklúbbsins Strawberries, verður ekki birt ákæra fyrir vændi, mansal eða fyrir að hafa haft milligöngu um vændi.

Viðar Már var handtekinn og færður í varðhald haustið 2013 í tengslum við rannsókn lögreglu á starfsemi Strawberries eftir ítrekaðar ábendingar um að vændisstarfsemi færi þar fram. Í bréfi ríkissaksóknara frá því 18. júní kemur hinsvegar fram að rannsóknargögn málsins teljist ekki nægileg eða líkleg til sakfellingar og málið hefur því verið fellt niður.

Ákvörðun ríkissaksóknara um niðurfellingu tekur þó einungis til þeirra meintu brota Viðars Más sem lúta að vændi og mansali. Annað mál sem er enn til meðferðar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lýtur að meintum skattalagabrotum Viðars Más hefur ekki verið fellt niður.

Rannsókn lögreglu var umfangsmikil og var meðal annars notast við tálbeitur. Óeinkennisklæddir lögreglumenn fóru á Strawberries tvö kvöld og var þeim samkvæmt rannsóknargögnum boðin kynlífsþjónusta á staðnum gegn greiðslu. Viðar var látinn sæta gæsluvarðhaldi ásamt fimm öðrum. Hann hefur frá upphafi málsins hafnað því með öllu að hafa haft milligöngu um vændi eða hagnast af því.

Lögregla lokaði Strawberries og svipti staðinn rekstrarleyfi á meðan rannsókn stóð. Í svari við fyrirspurn Vísis segir lögmaður Viðars ekkert telja því til fyrirstöðu að staðurinn geti fengið rekstrarleyfi á nýjan leik.


Tengdar fréttir

Verjandi segir vændi ekki stundað á Strawberries

Lögmaður eiganda kampavísins-klúbbsins Strawberries segir það vera af og frá að staðurinn og starfsmenn hans haft milligöngu um vændi eða hagnast af slíkri starsfemi. Á fimmta tug lögreglumanna tók þátt í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×