Innlent

Eigandi Hraðbergs: „Það er ekki gott að vakna við þetta“

Bjarki Ármannsson skrifar
Atli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hraðbergs, var á vettvangi brunans í Vesturvör í Kópavogi þegar fréttastofa náði tali af honum í morgun og hafði verið þar lengi. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út ásamt lögreglu rétt eftir klukkan þrjú í nótt vegna elds sem kom upp í iðnaðarhúsnæðinu þar sem Hraðberg er til húsa.

„Ég var bara vakinn af símanum klukkan átta mínútur yfir þrjú og þá er það Öryggismiðstöðin að segja að brunakerfið sé farið í gang,“ segir Atli. „Þegar ég kem á svæðið þá er búið að girða allt af hérna og þeir hleypa mér í gegn. Þannig ég kem að húsinu og sé að það er alelda. Og eldurinn magnaðist eiginlega bara þegar ég kom.“
 
Atli segir vel unnin störf slökkviliðsins hafa komið í veg fyrir að öll húsalengjan yrði eldinum að bráð.
 
Hraðberg rekur verkstæði fyrir lyftara og voru mörg slík tæki í húsinu þegar eldurinn kom upp, bæði í eigu fyrirtækisins og viðskiptavina. Atli segist ekki vita til þess að neitt hafi bjargast af tækjabúnaði eða verkfærum en hann hafði enn ekki getað komist inn í húsið þegar fréttastofa náði af honum tali. Ljóst er að tjónið er mikið en Atli segist ekki treysta sér til að meta það að svo stöddu.​

Ekki gott að vakna við þetta

„Ég vakna einfaldlega við það að brunakerfið fer í gang. Ég hleyp hérna niður og þá er þetta strax farið að loga ansi vel við aðra iðnaðarhurðina niðri á verkstæðinu,“ segir Sigurður Guðmundsson, annar af eigendum Hraðbergs.

„Það er ekki gott að vakna við þetta. Ég var að velta fyrir mér hvort ég gæti náð út einhverjum vélunum en svo byrjuðu sprengingar. Gaskútarnir eru þarna rétt við hliðina þannig að ég forðaði mér bara út.“

Sigurður hringdi í slökkviliðið sem var þegar á leiðinni og lögregla rétt að mæta á staðinn. Ástandið var orðið skuggalegt að sögn Sigurðar.

„Ég gat útskýrt fyrir þeim hvernig væri hagað til í húsinu. Hvar gaskútarnir væru og eldhólfin. Þeir þorðu ekki inn útaf kútunum.“

Lillý Valgerður Pétursdóttir hitti á Sigurð á vettvangi í morgun. Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×