Fótbolti

Eiður Smári verður ekki aðstoðarþjálfari Heimis hjá landsliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen var gestur „Í bítinu" á Bylgjunni í morgun og þar kom fram að hann sækist ekki eftir því að verða aðstoðarþjálfari Heimis Hallgrímssonar í íslenska landsliðinu.

Eiður Smári var nefndur sem mögulegur aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar en Heimir er nú eini þjálfari íslenska liðsins eftir að Lars Lagerbäck hætti með liðið eftir EM 2016.

Eiður Smári ræddi um knattspyrnuskóla Barcelona í útvarpsviðtalinu en skólinn hefur farið fram hér á landi á síðustu dögum. Eiður Smári var að þjálfa í skólanum en hann er nýkominn heim úr frábærri för íslenska landsliðsins til Frakklands.

Heimir hefur ekki ráðið sér aðstoðarmann og talað um það sjálfur út í Frakklandi að það kæmi alveg til greina að fá Eið Smára inn í þjálfarateymið.

Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki gefið það formlega út að hann sé hættur í landsliðinu eða hættur að spila fótbolta en margir sjá það sem flottan endapunkt á frábærum ferli að spila síðasta leikinn í átta liða úrslitum á EM.

„Ég upplifði mig svolítið sem þjálfara á tímabili í Frakklandi af því að margir voru að spyrja af því hvað ég hafði sagt á fundum og hvað ég hefði sagt við leikmenn til að halda ró þeirra eða taka burtu einhvern taugastrekking," sagði Eiður í viðtalinu og bætti við:

„Ég gerði þetta bara sem eldri leikmaður. Ég var í engu þjálfarahlutverki og var ekkert byrjaður í að setja mig inn í það. Ég er leikmaður með reynslu og róaði aðeins mannskapinn niður. Ég gaf bara af mér sem mér fannst ég þurfa og gat gefið," sagði Eiður Smári.

„Ég er ekki á leiðinni að verða þjálfari eða á leiðinni inn í þjálfarateymið. Ég vona samt að það sem ég gerði hafi virkað. Ég sé mig alveg verða þjálfara í framtíðinni en ekki á næstunni," sagði Eiður Smári.

Það er hægt að hlusta á allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×