Fótbolti

Eiður Smári: Var eiginlega orðið alltof langt síðan að ég skoraði

Óskar Ófeigur Jónsson í Astana skrifar
Eiður Smári er kominn aftur á blað.
Eiður Smári er kominn aftur á blað. vísir/getty
„Þetta var flott í kvöld og heilt yfir frábær sigur. Við ætluðum okkur að ná í þrjú stig og það var nákvæmlega það sem við gerðum," sagði Eiður Smári Guðjohnsen, eftir 3-0 sigur á Kasakstan í Astana í kvöld.

 

Eiður Smári kom íslenska liðinu í 1-0 í leiknum með laglegri afgreiðslu en þetta var fyrsta landsliðsmark hans frá árinu 2009.

Sjá einnig:Átján leikir og yfir 2.000 dagar frá síðasta landsliðsmarki Eiðs Smára

 

„Það var eiginlega orðið alltof langt síðan að ég skoraði fyrir landsliðið og það var kominn tími til," sagði Eiður Smári en íslenska liðið nýtti sér þá mistök hjá markverði Kasaka.

 

„Við vorum búnir að fara vel yfir það og vissum að við yrðum að vera tilbúnir. Þeir eiga það til að gera klaufaleg mistök og sem betur fer nýttum við það okkur vel," sagði Eiður Smári.

 

„Ég bjóst kannski við því að við yrðum undir aðeins meiri pressu en ég held að þar eigi við skilið hrós. Við leyfðum þeim ekki að pressa á okkur. Annað markið gefur okkur líka mikið. Það róar okkur mikið og gefur okkur þægilega stöðu. Við vorum ákveðnir í því að fara 2-0 yfir inn í seinni hálfleikinn," sagði Eiður Smári.

 

„Þetta leit kannski þægilega út en við vissum að þetta yrði ekkert auðvelt. Það þarf að hafa fyrir öllu í fótbolta í dag. Það að þetta hafi litið þægilega út sýnir okkar styrkleika. Við gáfum þeim ekki færi á því að komast inn í leikinn," sagði Eiður Smári.

Sjá einnig:Twitter logar eftir mark Eiðs

 

„Ég byrjaði aðeins framar og við lögðum upp með það að reyna að pressa þá aðeins hærra upp á vellinum. Eftir því sem leikurinn þróaðist þá fann ég að það var mikið svæði fyrir mig að komast í til að hjálpa miðjumönnunum aðeins. Við Gylfi getum líka leyst hvorn annan af þegar hann er að stinga sér," sagði Eiður Smári.

 

„Ég held að þeir hafi átt í vandræðum með það þegar við vorum að fá boltann milli þeirra miðju og varnar. Þeir vissu ekki hvort þeir ættu að pressa okkur í bakið eða gefa okkur svæðið. Það virkaði vel," sagði Eiður Smári.

 

„Við sögðum það fyrir leikinn að þrjú stig út úr þessum leik myndi gefa okkur mikið. Við höfum komið okkur í þá stöðu að vera að berjast um efsta sætið og það er frábært," sagði Eiður Smári.


Tengdar fréttir

Twitter logar eftir mark Eiðs

Samskiptavefurinn Twitter gjörsamlega logaði eftir að Eiður Smári Guðjohnsen kom Íslandi yfir gegn Kazakstan, en leikið er ytra. Markið kom eftir tuttugu mínútna leik, en staðan í leiknum er 1-0 þegar þetta er skrifað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×