Fótbolti

Eiður Smári valinn í báðar janúarferðirnar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. vísir/vilhelm
Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið valinn í báða leikmannahópa íslenska landsliðsins fyrir æfingaleikina þrjá sem fram undan eru í mánuðinum.

Eiður Smári er án félags sem stendur en að sögn Heimis Hallgrímssonar gæti það þess vegna breyst mjög fljótt. Það standa þó vonir til þess að hann geti leiki með íslenska landsliðinu í öllum þremur leikjunum.

Ísland mætir Finnlandi þann 13. janúar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og svo heimamönnum á sama velli í Abú Dabí þremur dögum síðar.

Síðari hópurinn leikur svo æfingaleik gegn Bandaríkjamönnum vestanhafs þann 31. janúar. Þrettán leikmenn hafa verið valdir í þann leik nú en hópurinn verður ekki fullmótaður fyrr en eftir ferðina til Abú Dabí.

Það sem leikirnir fara ekki fram á alþjóðlegum leikdögum eru aðeins þeir leikmenn valdir sem eru í fríi nú í janúar - það eru leikmenn frá Norðurlöndunum, Rússlandi og Kína.

Enginn hafnaði kallinu að þessu sinni sem er breyting frá því í fyrra, að sögn Heimis Hallgrímssonar.

Abú Dabí-hópurinn:

Markverðir:

Haraldur Björnsson

Gunnleifur Gunnleifsson

Ingvar Jónsson

Varnarmenn:

Haukur Heiðar Hauksson

Andrés Már Jóhannesson

Kári Árnason

Hólmar Eyjólfsson

Ragnar Sigurðsson

Sölvi Geir Ottesen

Hjörtur Logi Valgarðsson

Kristinn Jónsson

Miðjumenn:

Eiður Smári Guðjohnsen

Theódór Elmar Bjarnason

Rúnar Már Sigurjónsson

Björn Daníel Sverrisson

Elías Már Ómarsson

Þórarinn Ingi Valdimarsson

Árnór Ingvi Traustason

Emil Pálsson

Sóknarmenn:

Matthías Vilhjálmsson

Viðar Kjartansson

Kjartan Henry Finnbogason

Garðar Gunnlaugsson

Bandaríkin:

Markverðir:

Gunnleifur Gunnleifsson

Ögmundur Kristinsson

Varnarmenn:

Birkir Már Sævarsson

Hjörtur Hermannsson

Hallgrímur Jónasson

Ari Freyr Skúlason

Miðjumenn:

Arnór Smárason

Eiður Smári Guðjohnsen

Óliver Sigurjónsson

Rúnar Már Sigurjónsson

Guðmundur Þórarinsson

Kristinn Steindórsson

Sóknarmenn:

Aron Elís Þrándarson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×